Mánaðarskipt færslusafn fyrir: apríl 2007

Hræsnari dagsins er…

í–gmundur Jónasson. í nýjum pistli á heimasí­ðu sinni gagnrýnir hann auglýsingar ungra framsóknarmanna fyrir að vera ómálefnalegar. Ámeðan dreifir hans flokkur barmmerkjum eins og „Af hverju ekki rí­kisstjórn með zero Framsókn“ og „Aldrei kaus ég Framsókn“.

DV pólití­k Helga Seljan

Grí­mulaus árás Helga Seljan, fyrrverandi kosningastjóra Samfylkingarinnar, nú spyrils í­ Kastljósi RíšV á Jóní­nu Bjartmarz er hreint út sagt ótrúleg. í gær hélt hann langa einræðu í­ Kastljósinu þar sem hann fjallar um veitingu rí­kisborgaréttar til tengdadóttur ráðherrans. Ég vona að þjóðin fái að heyra sögu stúlkunnar frá Guatemala. Það verður hún hins vegar að gera þegar henni hentar, ekki í­ tengslum við æsifréttamennsku eða pólití­skar árásir Helga. Allir aðrir nefndarmenn í­ allsherjarnefnd hafa sagt ekkert óeðlilegt vera við málið.

Fjölmiðlar eiga að veita aðhald. Fréttamenn eiga að vera aðgangsharðir. Þeir eiga hins vegar ekki að skálda fréttir eða leyna heimildum sem skipta máli eins og Helgi gerði í­ einræðu sinni í­ gær. Þegar öll kurl eru komin til grafar finnst mér ólí­klegt að kosningastjórinn fyrrverandi starfi mikið lengur hjá RíšV. Ég geri þá kröfu til RíšV að fréttamennska þar sé vönduð. Fréttamennska Kastljóssins minnir einna helst á DV þegar deilurnar um það stóðu sem hæst.

Smá meira um sama mál. Aumkunarverð tilraun Kolbrúnar Halldórsdóttur til að gera málið tortryggilegt varð henni sjálfri til minnkunnar. Allir aðrir nefndarmenn í­ allsherjarnefnd hafa lýst því­ yfir að ekkert óeðlilegt hafi verið við ferli málsins. Hún veit af hverju rí­kisborgararétturinn var veittur. Hún veit hvernig staða kvenna er í­ Guatemala. Birtist hér kvenréttindastefna VG í­Â hnotskurn? í von um að slá pólití­skar keilur er stefnan fokin út í­ veður vind.

Kæru aðdáendur

Barmmerki

Ég er kominn á barmmerki ásamt öðru framsóknarfólki. Þeir sem vilja fá barmmerki með mér geta fengið svoleiðis á Kaffi Kind, Laugavegi 33. Um er að ræða einstakan safngrip sem framleiddur er í­ takmörkuðu upplagi. ÁKaffi Kind er ég lí­ka mjög oft í­ eigin persónu frá 10 á morgnanna fram á kvöld. Auk barmmerkja er næring í­ boði á staðnum, meistaradeildin og annað sjónvarpsefni, tölvur og sí­mar. Mæli sérstaklega með staðgóðum hádegismat fyrir námsmenn í­ próflestri og aðra hungraða. ÁLaugaveginum er alltaf til kaffi og með því­. Ég hvet ykkur til að kí­kja við.

P.S. Eggerts-handklæðin og Eggerts-dúkkurnar koma í­ næstu viku.

Próflestur og margföldun

Ertu í­ próflestri eða bara í­ leit að einhverju skemmtilegu? Þá er mæli ég með því­ að þú heimsækir þessa sí­ðu sem oftast næstu daga. Fallega kindin hér til hliðar flytur ykkur einnig á þessa nýju skemmtilegu sí­ðu.

Hingað til hafa stjórnmálaflokkar látið sér nægja að tala um að hækka fjárframlög til Háskóla íslands enda þarf þess. Björgvin G. Sigurðsson, einn helsti talsmaður skólagjalda innan Samfylkingarinnar gekk hins vegar skrefinu lengra á RíšV í­ kvöld og talaði um að það þyrfti að margfalda framlög rí­kisins til skólans. Mig minnir að skólinn fái í­ ár c.a. 5 milljarða frá rí­kinu og verð þá vonandi leiðréttur ef ég fer með rangt mál. Mér finnst hins vegar skipta mjög miklu máli hversu oft Samfylkingin ætlar að margfalda núverandi fjárframlög. Er verið að tala um að tvöfalda, þrefalda, fjórfalda eða fimmfalda? Fimm milljarðar er mjög nefnilega mjög há upphæð fyrir rí­kissjóð, hvað þá ef milljarðarnir verða tuttuguogfimm.

Óvinur Eggerts #1

Er Snorri Sturluson samkvæmt þeim athugasemdum sem ég fékk frá leiðbeinanda mí­num eftir að hann lauk við lestur uppkasts að BA ritgerðinni minni. Ég hef ekkert á móti Snorra. Ég er hins vegar á móti því­ að túlka það sem hann skrifaði sem algildan sannleik um norræna trú eins og margir íslendingar gera. Skrif hans gefa til kynna heimsmynd 13. aldar manns en segja okkur ekki hvernig trúin var ástunduð í­ raun og veru. Einhver heiðin minni kunna þó að leynast í­ skrifum hans án þess að við vitum það með fullri vissu. Eftir vinnu helgarinnar er vonandi ekki jafn augljóst „Snorra-hatur“ í­ ritgerðinni. Ég fæ bara útrás fyrir það á blogginu í­ staðin.

Einföldustu hlutir

Stí­ga á kúplinguna og bremsuna um leið og starta. Flókið mál. Ég sest venjulega upp í­ bí­l, stí­g á bremsuna og starta. Ég á nefnilega sjálfskiptan eðalvagn og keyri að öllu jöfnu ekki beinskipta bí­la. Eftir að hafa keyrt eða réttara sagt reynt að keyra slí­kan grip í­ dag er ég ákveðinn í­ að halda mig frá svoleiðis dóti framvegis. Ég veit ekki hvort heyrðist hærra í­ andskotans bí­lnum þegar ég reyndi að starta honum eins og hann væri sjálfskiptur á miðri Hverfisgötunni eða farþeganum sem hló af öllu saman. Ég mun aldrei kaupa mér beinskiptan bí­l.

Smá sjálfhverfa

Hér eru nokkrar myndir af mér og fallegu fólki. Lí­ka mikið af skemmtilegum og uppbyggilegum texta sem ég hvet ykkur til að lesa.

Hér eru engar myndir af mér þar sem ég tók þær sjálfur en engu að sí­ður er fólkið á þeim mjög fallegt.

Vöðvabúnt og jómfrúr

Stefán Bogi skrifar frábæra pistla vikulega inn á suf.is sem hann nefnir Þriðjudagsþanka. í dag skrifar hann um Fegðurðarsamkeppni Sjálfstæðisflokksins og segir m.a.

Það þorir enginn að mæla styggðaryrði um vöðvabúntið, um sterkasta strákinn í­ skólanum. Því­ þó að hann sé sennilega bæði illgjarn og heimskur, þá vilja allar litlar vinstri jómfrúr, missa sitt meyjarblóm til hans, svo undarlegt sem það kann að vera.

Hvort sem eitthvað er til í­ þessu eða ekki þá mætir gott fólk hingað.

Boðsblogg

Lesendum þessa bloggs er boðið að koma og þiggja léttar veitingar, lifandi tónlist og mikið fjör á Kaffi Kind, Laugarvegi 33 n.k. miðvikudagskvöld eftir kl. 20:00. 20 ára aldurstakmark.

Ungi framsóknarmaðurinn

Mannamót helgarinnar

Kosningabarátta okkar Framsóknarmanna í­ Suðvesturkjördæmi hófst formlega í­ gær þegar kosningaskrifstofur voru opnaðar í­ Mosfellsbæ, Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi. Ég fórnaði mér fyrir flokkinn og smakkaði veisluföngin á öllum stöðum, annað væri ókurteisi. Kidda gerir lí­ka deginum mjög góð skil í­ myndum.

Um helgina héldu Sjálfstæðismenn ví­st mjög flottan landsfund. Þeir vilja samt áfram taka upp skólagjöld við opinbera háskóla. Þar er ég ósammála þeim. Samfylkingin stóð á sama tí­ma fyrir trjáræktarnámskeiði í­ Egilshöll þar sem kennt var hvernig rækta eigi peningatré. Því­ miður eru ekki ákjósanleg skilyrði til ræktunar þeirra hér á landi enda væri ég búinn að fá mér eitt slí­kt ef svo væri.