Það er ekki oft sem hægt er að segja þetta í lok september en Aston Villa hefur ekki tapað leik í vetur. Chelsea á eftir og útsendingunni er ekki frestað vegna bikarúrslitanna á íslandi. Sjáum til hvernig fer.
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: september 2006
Ég er hér og þar
Rakst á nafnið mitt hér. Þetta verður skemmtilegt verkefni.
Slátur
Ég verð að skoða það alvarlega hvort ég þurfi að afneita fjölskyldunni geri ekki einhver slátur í haust og bjóði mér. Ég vil alvöru slátur, ekki eitthvað „gervi“ slátur frá Sláturfélagi Suðurlands.
Smjörsteikt slátur með púðursykri er örugglega einhver besti hádegismatur sem til er. Nú er ég saddur.
Brók og bót
Hef verið að fletta gömlum Þjóðbrókarblöðum í dag. Margt þar mjög áhugavert. Fann þar m.a. vísu sem ort hefur verið um gjaldkerann í þessum merkilega félagsskap (eða kannski almennt um gjaldkera). Veit ekki hver orti.
Ef féhirslur tæmast, þá fölnar mitt vald
þó fögrum titli flíki.
En ef þú borgar uppsett gjald
áttu himnaríki
Annars þá fannst þeim sem ég talaði við á Bókhlöðunni nöfnin á afurðum þjóðfræðinema vera ansi skrýtin. Félagið heitir Þjóðbrók og blöðin sem félagið hefur gefið út: Lesbrók, Þjóðbrókarbót og Slæðingur. Ásínum tíma var haldin samkeppni um nafn á ritið og sigraði nafnið Læðingur en þar sem það var í notkun var S-inu bætt framan við.
Erfitt val
Þurfti að velja hvort ég færi á málþing um Jónas frá Hrafnagili eða kjördæmisþing í dag. Valdi kjördæmisþingið og þurfti þar að velja milli leiða til að stilla upp á lista fyrir þingkosningar í vor. Þó ég hafi setið mörg kjördæmisþing (og mörg hver mjög fjörug) þá var þetta mjög sérstakt eins og komið hefur fram í fréttum. Þar var samþykkt að fara í póstkosningu um efstu sæti á listans í október/nóvember. Sjálfur held ég að heppilegra hefði verið að fara aðra leið en valin var en verð víst að lifa með þessu.
íšr dagbók lögreglunnar
Ég verð nú eiginlega að viðurkenna að ég vorkenni hálfpartinn þjófnum.
Hlutverk ungliðahreyfinga
Framsóknarflokkurinn hefur treyst ungu fólki til ábyrgðarstarfa, t.d. er Birkir Jón Jónsson yngsti formaður fjárlaganefndar/fjárveitinganefndar frá upphafi. Þriðjungur þingflokks Framsóknarflokksins er á SUF aldri. Ritari flokksins er á SUF aldri. Ámeðan SUF hvetur ungt fólk til að gefa kost á sér á framboðslista fyrir kosningarnar í vor heyrist annað hljóð frá Ungum jafnaðarmönnum.
Ungir jafnaðarmenn hvetja ákveðna þingkonu til að bjóða sig fram í 1. sætið í Suðurkjördæmi. Að vísu gaf hún það út seinna um daginn að hún ætli að hætta í stjórnmálum en skilaboð ungliðahreyfingarinnar eru engu að síður merkileg. Treysta þeir ekki öðrum úr kjördæminu til að leiða listann? Má maður eiga von á því að UJ taki afstöðu í fleiri kjördæmum? Munu þeir lýsa yfir stuðningi við fleiri sitjandi þingmenn flokksins eða er þingkonan á einhverjum sér samningi?
Ég sé fyrir mér fréttaflutninginn og upphrópanir á bloggsíðum ef SUF tæki upp á því að lýsa yfir stuðningi við einn frambjóðanda af mörgum í prófkjöri eða forvali á næstu dögum. Hvað þá ef viðkomandi væri ekki einu sinni á SUF aldri.
Hér held ég að ungu jafnaðarmennirnir séu eitthvað að misskilja hlutverk sitt eða kannski er ég bara að misskilja hlutverk ungra jafnaðarmanna?
SUF þing
Skemmtilegt sambandsþing SUF um helgina samanstóð af málefnavinnu, djammi og kosningum. Gegndi embætti þingritara og fórst það örugglega vel úr hendi. Jakob kosinn formaður og Stefán Bogi verður líklega kosinn varaformaður á fyrsta stjórnarfundi. Sjálfur sit ég í varastjórn.
Málefnavinnan fór líka vel. Er nokkuð viss um að eitthvað af þeim ályktunum sem samþykktar var í dag verði sett á oddinn í kosningabaráttunni í vor.
Kvöldverðarhófið í Viðey og það sem á eftir kom var samt sem áður hápunktur helgarinnar. Missti af ’84 hittingi Borgnesinga (sorrý) en sá í staðinn verðandi varaformann SUF dansa upp í rjáfrum Viðeyjarstofu og svo margt fleira. Kannski hefði verið betra að það sem gerðist í Viðey yrði bara eftir þar en þar sem einhverjir smygluðu myndavélum með held ég að það sé lítil hætta á því.
Skömm af þessu
Þvílík þjóðarskömm sem ég er. Vakti ekki fram eftir til að kjósa Megní „okkar“. Sleppti því líka að kjósa á Kyrrahafstíma. Er ekki einu sinni viss um að ég nenni að horfa í kvöld. Aumingja maðurinn lendi hann í því að túra um heiminn með Tommy Lee.
Börn
Enn ein allt í lagi íslenska myndin. Held að Nói Albínói sé síðasta virkilega góða myndin sem ég sá og það eru tæp þrjú ár síðan. Kannski á maður bara að vera þakklátur fyrir þær fáu myndir sem framleiddar eru og hætta að gera kröfur.