Hlutir sem ég ætla EKKI að gera um helgina
- Hugsa um Icesave
- Hugsa um Haga, 1998, Jón Ásgeir eða bara eitthvað sem tengist afskriftum skulda
- Hanga inni of mikið
- Vakna of snemma
- Vakna of seint
- Læra of lítið og fá samviskubit á mánudaginn
- Eyða heilum degi í óminnishegrann
Hlutir sem ég ÆTLA að gera um helgina
- Lesa um bernskulæsi og barnabókmenntir
- Vinna í ritgerð um áðurnefnd efni (fyrst og fremst læsið þó)
- Fara út að taka myndir
- Fara í ræktina
- Horfa á fótbolta
- Smakka fleiri jólabjóra
- Kverúlantast á internetinu
Nokkuð viss um að þetta verður bara fínasta helgi.