Bragðið af jólunum
Sit við tölvuna og hlusta á blessaðan spilastokkinn. Slembileikurinn skellir á mig “What can I give him” með henni Mahalíu Jackson heillinni og yfir mig steypist bragðið af jólunum: Rjúkandi heitt og ilmandi soðið brauð með rennandi smjöri og spikfeitri hangikjetsflís. Svo strax oní það kemur Föndurstund með Baggalúti.
Jólin eru greinilega að koma.
Gratúlera með flutninginn
Dúnja
13 des. 06 at 11:57
Jei! Hræringar á netmiðlamarkaði! Ný og betri þúertannlína! Exístensíalismi! Laufabrauð! Hipp hipp! Allir að klóra sér í rassinn!
Magnús
13 des. 06 at 13:52
Til hamingju með nýju síðuna. Það er truflað að vera truflaður!
Eygló
13 des. 06 at 19:45
Ég er hrópandi í eyðimörkinni í síðasta kommentinu á gamla blogginu þínu. Og finnst það viðeigandi.
Siggalára
14 des. 06 at 9:51