Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Eitt ofurlítið kast af smárasótt

4 athugasemdir

Þriðji í páskum: ég er með magapínu.

Er ég annars sá eini sem er ekki alfarið afslappaður yfir PepsíMax auglýsingunni? Þessari þar sem menntaskólastrákarnir eru strandaglópar í eyðimörkinni? Og súpersexí skutlan kemur til bjargar eins og í blautum draumi í svefnpoka í Þórsmörk?
“Úúúú strákar. Við verðum víst að vera hérna í nótt.”

“Eigum við ekki að koma ykkur úr þessum ‘blautu’ fötum.”

Já, fynd. Haha. Og fólk lætur eins og Kókakólakompaníið hafi verið fyrst til að fatta uppá auglýsingaherferð með Zero legsýkisjöfnuði.

Afhverju hef ég aldrei orðið var við neinn láta þetta fara í taugarnar á sér?

Ég veit ekki. Kannski er þetta bara af því að viðfangið er hjólgraða heimilisfrúin Eva Longoria, en ekki togleðursjórtrandi fermingarstelpa úr Kópavogi. Ekki þess verð að taka sóttina yfir.

Hjörvar skráði

10. apríl 2007 kl. 14:09

Flokkað undir Amstur, Heimsmálin, Þjóðmálin

4 athugasemdir við 'Eitt ofurlítið kast af smárasótt'

Gerast áskrifandi að athugasemdum við 'Eitt ofurlítið kast af smárasótt' með RSS eða TrackBack.

  1. Hahaha…þú ert alveg mátulega steiktur.

    Íris

    11 apríl 07 at 23:24

  2. Hah jú! Ég er búin að ergja mig óheyrilega á þessari auglýsingu síðan ég sá hana fyrst hér í Englandi. Reyndar fer Eva í taugarnar á mér þar sem hún hefur lýst því yfir að hún ætli að þiggja öll hlutverk sem ganga út á kynþokkann, hún veit sem er að hún er óttalegur pappakassi sem getur lítið leikið og því mun eftirspurnin fjúka út í veður og vind þegar hún hættir að vera sæt.

    Ljúfa

    12 apríl 07 at 22:53

  3. Hei, muniði líka eftir kókakóla auglýsingunni þar sem allir sitja með kerti og syngja um að allir í heiminum geti verið vinir! Hei! Raunhæft maður!! Þokkaleeega!! Indjánar og kúrekar hlið við hlið, svartir og hvítir hlið við hlið kínverjar og… og… (hvað er andstæðan við gult? Er það blátt?) og blámenn hlið við hlið. Var reyndar ekki búinn að átta mig á að þessi auglýsing væri svona hliðholl blökkumönnum, bara bókstaflega allir geta verið vinir þeirra! Magnað maður!

    Orri

    16 apríl 07 at 20:48

  4. Hahaha…þú ert alveg mátulega steiktur Orri minn.

    Pezus

    16 apríl 07 at 22:24

Svaraðu fyrir þig