Má annars til með að geta…
…að ég var í hádegis-rauðvíns-og-osta-snobb-boði að Gljúfrasteini í gær og varð vitni að því þegar Eiríkur Örn Norðdahl hlaut þýðingarverðlaunin í ár, mér til mikillar ánægju. Bókin var Móðurlaus Brooklyn eftir Jonathan Lethem. Eins og lesa má annarsstaðar þótti mér vel að verki staðið.
Oooog gleðilegt sumar, meðan ég man.
Nýtt djobb?
Dúnja
25 apríl 08 at 0:20
Já, reyndar. En þó ekki að það standi í neinum tengslum við efni færslunnar.
Hjörvar
25 apríl 08 at 9:03