Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Kraftakveðskapur (snúið útúr gömlum húsgangi)

Ein athugasemd

Grjóni kúldrast á kvíabekk
með krimmum og glæpahundum.
Engan skal hann matinn fá
fyrr en hann skilar pundum.
Og svo skilaði hann pundum.
Honum var gefinn grautur í skál og gamalt tyggjó.
Grjóni kúldrast á Kvíabryggjó.

Bjöggi kúldrast á kvíabekk
með krimmum og glæpaherfum.
Engan skal hann matinn fá
fyrr en hann skilar evrum.
Og svo skilaði hann evrum.
Honum var gefinn grautur í skál og gamalt tyggjó.
Bjöggi kúldrast á Kvíabryggjó.

Hjörvar skráði

10. júlí 2009 kl. 16:46

Flokkað undir Dylgjur, djógur, Þjóðmálin

Ein athugasemd við 'Kraftakveðskapur (snúið útúr gömlum húsgangi)'

Gerast áskrifandi að athugasemdum við 'Kraftakveðskapur (snúið útúr gömlum húsgangi)' með RSS eða TrackBack.

  1. ljómandi kveðskapur. megi hann verða að áhrínisorðum.

    baun

    10 júlí 09 at 17:48

Svaraðu fyrir þig