Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 30. júní 2003 klukkan 23:06

Ég er farinn

Nei, ég er ekkert farinn en þetta er plan. Í einum þætti af Seinfeld kom George með það plan að yfirgefa alltaf staðinn um leið og hann nær einum góðum brandara af því hann klúðraði öllum bröndurum sem komu í kjölfarið. Þetta er gott plan fyrir mig. Ef ég er í kringum fólk sem skilur ekki húmorinn minn þá á ég til að rugla það alveg með bröndurum og þá er það oft af því að ég hef sagt brandara sem virkaði og vill fylgja honum eftir. Ég verð að hætta þessu, bara yfirgefa svæðið meðan fólkið er ennþá hlæjandi.

Mánudagur, 30. júní 2003 klukkan 18:37

Ólavur Riddararós

Í dag kom nýja útgáfan af Ólavi Riddararós með Tý á Rás 2 og ég verð að segja að þetta er líklega flottasta útgáfan af laginu sem ég hef heyrt. Ég hef heyrt þrjá söngvara taka það. Pól Arni Holm tók það á Broadway og Smáralindinni (það rokkaði), Allan Streymoy tók það á samnefndri smáskífu (það var ekki nærri jafn gott) og nú síðast er það Heri Joensen sem syngur.

Ég hlakka til að fá Eric the Red, hann er vonandi á leið til mín í pósti.

Mánudagur, 30. júní 2003 klukkan 18:28

Helvítis Síminn

Áðan eyddi ég rúmlega 40 mínútum í símanum í að reyna að ná sambandi við Símann. Þegar klukkan var að verða sex sá ég fram á það að einfaldara væri að fara yfir í Kringluna og redda þessu þar. Fyrrihluta verkefnisins lauk á frekar einfaldan hátt og ég er ekki lengur internetáskrifandi hjá Símnet, seinnihluta verkefnisins lauk ekki jafn einfaldlega. Ég reyndi að útskýra málið fyrir afgreiðslumanninum en hann hefði allt eins getað sagt:”Ég veit ekkert, ég skil ekkert, þó þú útskýrir þetta þannig að greind dýr gætu skilið það þá myndi ég ekkert fatta.” Mig langaði að standa upp og setjast við næsta þjónustuborð til að reyna að finna vit hjá Símanum en af því ég er afskaplega góður í mér þá gerði ég fokkings hálfvitanum það ekki.

Hvert skref sem maður tekur í átt frá Símanum er unaðslegt.

Sunnudagur, 29. júní 2003 klukkan 22:14

Geimferð IV:Heim í heiðardalinn

Spock leikstýrir Star Trek IV:The Voyage Home. Þessi er mynd er að mestu leyti gamanmynd og oft mjög fyndin. Risastór hlutur kemur í átt að Jörðinni og gerir flesta tækni óstarfhæfa. Hluturinn er kominn til að spyrja hvalina hvers vegna þeir hafi ekki hringt, hvalirnir hafa ekki hringt af því þeir eru dauðir. Eina leiðin til að bjarga Jörðina er að ferðast aftur í tíman (með oftreyndri aðferð) og ná í hvali.

Áhöfnin velur að fara til Jarðarinnar á seinnihluta 20. aldar (1986 líklega) í stað þess að fara á eitthvað annað tímabil þar sem auðveldara hefði verið að felast og þar sem hvalategundin sem leitað er að er algengari (en þeir vita viti sínu, það hefði verið miklu dýrari mynd, betra að fara bara á götur San Francisco). Gamanið er mest að sjá áhöfnina bregðast við árinu 1986 (oft reyndar bjánalegir brandarar).

Inn í málið blandast hvalavísindamaður og norskir (eða íslenskir) hvalveiðimenn sem eru að veiða við Alaska (jamm, Alaska). Sem minnir mig á að hugsanlega eru fréttamyndir af því þegar er verið að sundurlima hval frá Íslandi. Myndin er frá þeim tíma þegar það var svalt að hugsa um umhverfismál (ólíkt nútímanum þar sem virðist vera svalt að vera sama um þau) en þarna koma þó fram undarlegar hugmyndir um hvali sem hefði alveg mátt sleppa.

Í lok myndarinnar standa allir upp og klappa en það fellur í skuggan af því hve hræðilegur leikari William Shatner er.

Búningarnir eru svipaðir og í síðustu mynd en búningur Spock stendur uppúr.

Sunnudagur, 29. júní 2003 klukkan 17:30

Takandi í RSS

Ég tók mig til og opnaði dyrnar, dyrnar að rss. Ekki það að ég viti nokkuð um það en ég náði að koma þeim sem eru innan Kaninkunnar og nota MT inn á RSS-yfirlitið hér við hliðina. Ég bætti líka Neil Gaiman þarna inn. Þetta er ekki gallalaust, í fyrsta lagi fara meðlimir Kaninkunnar á toppinn (veit ekki af hverju en það er kannski bara gott og til þess gert að sýna að við erum best) og síðan er Neil Gaiman þarna einhvers staðar niðri með einhverja gamla færslu (það er líklega vandamál hans megin).

Ég var annars að láta mér detta í hug að prufa svoltið, kannski að það virki. Nú er bara spurningin hvort blogger búi ekki sjálfur til RSS eða hvort það sé eitthvað spes sem þarf til að koma til svo ég get bætt öðrum inn.

!!Uppfært!!

Mér sýnist meðlimir Kaninku fara eðlilega niður á við, sjáum hvort það lagist ekki bara að sjálfu sér (ég hef afar lítinn skilning á því hvernig þetta virkar í raun). Ég bætti inn Badabing sem er starfsmaður ákveðins fréttablaðs og getur verið skemmtilegur, hann er líka góður maður því hann er hrifinn af Duran Duran og vísaði einu sinni á mig (hjá honum hét ég “einhver Óli”).

Mér sýnist að ég get ekki bætt við neinum sem nota blogger (nema þeir noti blogger pro en ég veit ekki um neinn sem gerir það), það er leiðinlegt því þar fara Sverrir Páll, Hjördís, Steinunn og fjöldi annara.

Sunnudagur, 29. júní 2003 klukkan 11:38

Geimferð III:Spock er týndur

Star Trek III:The Search fjallar um leit áhafnar Enterprise að Spock, þau hefðu átt að líta bak við myndavélina því hann leikstýrir myndinni. Myndin er ein af fáum oddatölu Star Trek myndum sem eru góðar, frekar skemmtileg í gegn með frábærum dramtatískum atriðum þar sem William Shatner fær að sýna hve slæmur leikari hann í raun er.

Christopher Lloyd leikur klingona í þessari mynd sem sækist eftir tækninni sem kom fram í síðustu mynd. Kirstie Alley var orðinn of merkileg til að leika í Star Trek þannig að einhver önnur leikur hana.

Búningarnir í þessari eru mjög svipaðir þeim sem voru í The Wrath of Khan enda gerist myndin nær strax á eftir þeirri mynd.

Sunnudagur, 29. júní 2003 klukkan 3:01

Hárið

Í morgun var ég eldsnemma í vinnunni að taka vakt fyrir félaga minn, afskaplega hress. Ég var að hlusta á Létt FM sem var jafn hresst og ég. Í útvarpinu kom síðan lag úr Hárinu, íslensku útgáfunni frá því fyrir hátt í tíu árum síðan semsagt. Í fyrra fór ég á Hárið hjá LMA (Leikfélag Menntaskólans á Akureyri (sem ég var einu sinni í)), þar lék Hildur vinkona Eyglóar (frænka Evu og Heiðu sem eru sífellt títtnefndari) aðalhlutverkið. Ég var ekkert sérstaklega hrifinn af uppfærslunni í heild sinni en ég verð að segja að Hildur stóð sig afskaplega vel og það var það sem rifjaðist upp fyrir mér. Mig langaði eiginlega meira að heyra Hildi syngja þetta lag heldur en þessa sem söng það í útvarpinu.

Ég tek fram að ég er ekkert sérstaklega mikið fyrir að hrósa fólki að óþörfu og það að minnast á svona hlut ári seinna segir mikið um hve hátt álit ég hef á frammistöðu hennar.

Laugardagur, 28. júní 2003 klukkan 22:39

Zombie

Hlustaði á Zombie í gær, nokkuð góður þáttur. Á Móti Sól var í heimsókn þannig að Doktorinn og Grjóni voru sífellt að svívirða þá. Þegar þeir sögðu að öll eintök síðustu plötu hefðu selst þannig að hún væri ekki lengur til þá sagði Dr. Gunni einfaldlega “gott” og var þá líklega ekki að samgleðjast þeim með velgengnina. Á Móti Sól voru nokkuð góðir í þessu viðtali, tóku svívirðingunum með húmori og skutu líka á Doktorinn (”þetta frá manninum sem samdi Prumpulagið”). Síðan var einhver Skítamóralsnáungi og það fór merkilega skemmtilega fram. Mér er minnisstætt hvernig gert var grín að Unplugged plötu Greifanna enda er hún frekar glötuð.

Síðan kom Útvarpsleikrit þar sem Siggi Pönk kom eftirminnilega fram. Zombie topp 11 listinn var líka fyndinn. Listinn fjallaði um væntanleg “sellout” og innihélt meðal annars:

“Hæ krakkar þetta er Jónsi úr Sigur Rós. Ég drekk bara Pepsi því það er svo kúl”
“Þetta er Siggi Pönk, ég borða bara á American Style”
Gyrðir Elíasson notar bara Sjampó frá Flembís.

og síðan að lokum uppáhaldið mitt:
“Ha, þú hér?” “Ha, þú hér?” “Ha, þú hér?” “Ha, þú hér?” “Gáfuðu tvíburarnir Sverrir og Ármann nota bara gleraugu frá Gleraugnaverslun Flembís”.

Síðan er spurningin: Hvað er Flembís? Svör skulu koma í kommentakerfinu, sérstök verðlaun verða líklega ekki veitt.

Ég verð samt að efast um að stór hluti hlustenda X-isisins (einsog einn viðmælandi þeirra komst að orði í gær) fatti tilvísanir í Gyrði Elíasson, Sigga Pönk og “Gáfuðu Tvíburana”. Ég hef hins vegar gaman að því þannig að það skiptir mig ekki máli.

Síðan má geta þess að ég hef einsog er ekki fastan tengil á Sverri en hann er inn á Molalistanum hér við hliðina, það á bara eftir að uppfæra nýju staðsetninguna á honum. Ég vona að ég missi ekki hlekkinn þó hann sé ósýnilegur í bili, reyndar er ég líka á þessum lista ósýnilegur. Spurning hvort maður ætti að læra eitthvað um rss til þess að geta bætt við þeim sem vantar pláss. Ég man einmitt að einhver bjó til yfirlit yfir Ármann svo maður gat haft hann inni með smátrixi þó hann væri ekki á Molunum. Langar líka að bæta inn Neil Gaiman.

Þetta minnti mig síðan á að það væri þægilegt ef hægt væri að búa til lítið Kaninku lógó til að hlekkja á forsíðuna, það gæti beint meiri umferð til félaga vorra.

Laugardagur, 28. júní 2003 klukkan 19:41

Frjáls og óháður?

Hannes Hólmsteinn er að skrifa ævisögu Halldórs Laxness. Fyrsta bindið á að heita Halldór, annað bindið Kiljan og hið þriðja Laxness. Hannes segist geta komið að þessu efni “frjáls og óháður”.

Frjáls og óháður? Hahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahaha.

Laugardagur, 28. júní 2003 klukkan 19:04

Trú og matur

Ég var að lesa grein á Straight Dope um mataræði í Íslam og gyðingdómi. Afskaplega heillandi, munurinn á mataræðinu er lítill þó reglurnar séu aðeins mismunandi. Ég hafði líka gaman að því að komast að því að Múslímar sætta sig við að borða Kosher mat (sem hefur verið “afgreiddur” samkvæmt reglum gyðinga). Síðan sér maður hvað göfugar hugsanir liggja á bak við reglur um slátrun en hins vegar er sorglegt að þessar reglur skuli halda sér þegar þær eru í raun orðnar óþarfar. Þetta sýnir hvað er hættulegt að tengja svona góðar reglur við trú, trúin tekur yfir hefðirnar og niðurlægir góða tilganginn þannig að hið góða hverfur.

Ég er annars afskaplega Kosher í mér, finnst hræðilegt að drekka mjólk með kjöti.

Eldri færslur »