Mynd-á-viku mynd númer 26 (árið hálfnað!). Allar myndirnar hingað til eru hér.
Monthly Archives: júní 2010
Smáhestasafn (PAW)
Rakst á þennan glæsilega hóp fyrir utan Vín í Hrafnagili rétt fyrir utan Akureyri á föstudaginn seinasta. Ætla að gera ráð fyrir því að samkoma þessara bíla hafi eitthvað að gera með bíladaga sem voru haldnir fyrir norðan um helgina. Mynd-á-viku mynd númer 25. Allar myndirnar hingað til eru hér.
Jacob (PAW)
Þetta er hann Jacob, starfsmaður í Blómavali síðan 1993. Rakst á hann þegar ég kíkti þangað um helgina og hann fylgdist vel með mér eins og sést á myndinni. Mynd-á-viku mynd númer 24. Allar myndirnar hingað til eru hér.
Jónína Ben treystir á slakan enskuskilning
„Ég hef aldrei haldið því fram að þetta sé byggt á vísindalegum rannsóknum. Við erum að reka heilsuhótel og þurfum ekkert að sýna fram á vísindalegar rannsóknir.“ – Jónína Ben, 11. Júní 2010 á pressunni.is. „She has years of experience behind her and the results are unbelievable. Research has shown that Jonina Ben’s detox treatment is preventive …
Continue reading „Jónína Ben treystir á slakan enskuskilning“
Skyggni lítið (PAW)
Svona var útsýnið heiman frá mér í öskupartýinu í seinustu viku. Mynd-á-viku mynd númer 23. Allar myndirnar hingað til eru hér.
Furðu lostinn yfir viðbrögðum biskups!
Eða þannig. Biskup segir að ekkert sé til sem heiti algjör aðskilnaður ríkis og kirkju með því að endurskilgreina kröfuna í þá átt að hún sé sú að trú verði bönnuð, dregur Norður-Kóreu inn í umræðuna til að fá fram einhver hugrenningartengsl (einhverskonar neo-Godwins law) og þvælir svo með það að ríki og kirkja og …