Ok, lett mí gett ðis streit. Framsókn tilnefndi einstakling í mannréttindaráð borgarinnar sem er á þeirri skoðun að hann eigi að hafa hærri sess í samfélagi og meiri réttindi en þeir sem eru öðruvísi en hann. Þegar oddviti flokksins var beðin um útskýringar á þessu vísaði hann sérstaklega til skrifa þessa einstaklings um að trúfrelsi …
Author Archives: Egill Óskarsson
Costco og frjálslyndið
Risastórt bandarískt verslunarfyrirtæki sýnir því nú áhuga að opna verslanir á Íslandi. Fyrirtækið vill geta selt lyf, áfengi og innflut kjöt í verslunum sínum hér á landi. Ráðherrar og þingmenn Sjálfstæðisflokksins taka vel í að breyta lögum og jafnvel veita undanþágur svo að það sé hægt. Nú ætti ég auðvitað að gleðjast yfir því að …
SÍS í skrýtnum leik – aftur
Ég fékk í hendurnar leyfisbréf sem leikskólakennari í júní árið 2011. Þá var staðan í kjaramálum leikskólakennara ekkert sérstök. Við vorum í raun tveimur samningum á eftir viðmiðunarstéttum þar sem samningur okkar brann inni í hruninu. Um það má lesa hér. Ég kom beint inn í stétt í kjarabaráttu, stétt sem var á leið í …
Guðni Ágústsson og vonda fólkið á netinu
Guðni Ágústsson ætlar víst ekki að fara í framboð í Reykjavík. Framsóknarflokkurinn er í vandræðum eftir að Óskar Bergsson náði ekki, öllum að óvörum í flokknum af einhverjum ástæðum, að rífa fylgi hans upp í borginni og vék af framboðslistanum. Einhvern tíman hefði þótt eðlilegast að næsta manneskja á lista hefði þá tekið oddvitasætið og …
Að springa á limminu
Ég er búinn að gefast upp á mynd-á-viku verkefninu. Það kom semsagt í ljós að þegar maður er í fullri vinnu, MA námi, allskonar félagsstörfum og vill líka eiga tíma með kærustu og vinum þá er ekki gott að binda sig við svona verkefni. Vandamálið er svosem ekki að komast í að taka myndirnar, þegar …
Pólitíkusarnir og KÍ þingið
Þessa dagana stendur yfir 6. aðalþing Kennarasambands Íslands. Eins og venjan er á svona þingum komu pólitíkusar í heimsókn. Þær heimsóknir voru svolítið spes. Illugi Gunnarsson er menntamálaráðherra. Það var auðvitað fullkomlega eðlilegt að hann kæmi á KÍ þing og héldi erindi. Það sem var ekki eðlilegt er að hann lét breyta fyrir sig dagskránni …
Kennarar á móti breytingum
Algengt viðkvæði í umræðunni um styttingu framhaldsskólans er að kennarar séu bara alltaf á móti öllum breytingum. Að þeir séu hrikalega íhaldssöm stétt sem stendur vörð um staðnað menntakerfi sem ekkert hafi breyst í áraraðir. Ég held að þetta sé tóm vitleysa. Andstaðan við „tillögurnar“ sem lagðar hafa verið fram núna hafa að mínu viti …
Punktar
Stundum finnst mér voðalega gott að setja niður blogg sem eru bara nokkrir frekar samhengislausir punktar sem verða kannski seinna að alvöru bloggfærslum. Stjórnunarfræðin sem ég hef lært í MA náminu eru áhugaverð. Eitt af því sem mér finnst áhugaverðast er að dágóður partur af þessu er eitthvað sem mér finnst í rauninni common sens. …
Mynd á viku 11 – Grámi
Arðgreiðslur úr skólum
Nú berast af því fréttir að Menntaskólinn Hraðbraut muni hugsanlega hefja aftur rekstur. Skólinn var lagður niður í kjölfar þess að Ríkisendurskoðun gerði úttekt á rekstrinum og komst að því að greiddur hafði verið út arður sem skólinn stóð í raun ekki undir, að nemendur í honum hafi um árabil verið færri en þjónustusamningur hans …