Helvítis fokking fokk!

Tvö áramótaheit:

  1. Að vera betri manneskja á komandi ári en því sem er liðið. Ég er búinn að vera með þetta heit í áskrift síðustu fimmtán árin. Kosturinn við það er sá að það er alltaf þess virði að rembast við, óháð því hvort manni tókst að efna það síðast eða ekki.
  2. Að sniðganga Geir H. Haarde. Ef haft er eftir honum í blaðinu þá fletti ég yfir það. Ef hann kemur í hádegisfréttum útvarps þá slekk ég á því. Ef hann kemur í kvöldfréttum sjónvarps þá skipti ég um stöð og hlusta frekar á vísdóm Hómers Simpson. Þessu verður haldið til streitu út árið eða þartil hann leysir upp ráðuneyti sitt. Hvort sem kemur á undan.

Fjölskyldan er annars búin að ákveða að mæta niður á Austurvöll á morgun. Ég hefði ekkert á móti því að hafa skilti eins og það sem Jón Gnarr bjó til í skaupinu í fyrrakvöld. Ef einhver byrjar að kyrja, þá mun ég eflaust taka undir.

Gleðilegt nýtt ár.