Ja, nú var ég nærri búinn að gleyma, lagsmaður. Það sem ég vildi sagt hafa: Nú skal undið upp seglum og plankinn genginn. Réttu mér bokkuna.
Dagskipt færslusafn: 19. september, 2007
Nokkrir punktar
- Ég er fúlskeggjaður.
- Fjögurra ára dóttur minni tókst það í gær sem ég afrekaði ekki sjálfur fyrr en ég var kominn fram á þriðja áratuginn: Að stífla klósettið. Án nokkurra hjálpartækja.
- Ég er svooo stoltur af henni.
- Vitiði, mér finnst nýja strætókerfið ekkert svo voðalegt.
- Nema það fer dálítið í mig að geta ekki séð hvað ég er lengi að komast á staðinn lengur.
- Og nú mun látið á reyna.