Efnahagsleg sóttkví

 Síðan á mánudag hef ég verið að bíða eftir að mánaðarlega greiðslan sem ég legg af laununum hérna úti í reikningana uppi á skerinu bærist í gegnum prósessana. Svo í morgun fékk ég þessa orðsendingu frá Danske Bank þaraðlútandi:

Overførsler til/fra Island.
Danske Bank koncernen udfører ikke længere betalinger til og fra Island på grund af den nuværende økonomiske situation i Island.

Vi beklager de gener, det giver.

Það er sumsé engum blöðum um það að fletta lengur: Efnahagslegt pestarbæli. Svona er Ísland í dag.

Samúðar-  og baráttukveðjur til allra minna heimdraga.