Dagurinn í gær var afar merkilegur.
Hápunktar frá mínum sjónarhóli, í tímaröð:
- Fánabrenna á x-D fána frá Sjálfstæðisflokknum.
- Tryggvi Gunnarsson sjálfstæðishetja grímuklæddur í Alþingisgarðinum.
- Ég sem einkabílstjóri friðsamlegasta mótmælanda dagsins eftir að hann fékk piparúða í andlitið.
Stemmingin í gærkvöldi var sérstök: Hálfgerð partýstemming – góða skapið allsráðandi en undirliggjandi einhver alltaðþví óbærileg spenna sem kveikti grun um að eitthvað gæti hvenær sem er farið skelfilega úrskeiðis. Sem það gerði blessunarlega ekki.
Í morgun sagði ég við konuna mína að dagurinn í gær hefði verið næstmikilvægasti dagurinn í flísbyltingunni (sem hún vill reyndar frekar kalla lopabyltinguna). Sá mikilvægasti verður dagurinn í dag.
Alþingi kemur saman uppúr hádegi. Hvar verður þú?