Jæja.
Ég var að renna augunum yfir blessaðan moggavefinn. Svona eins og maður gerir. Hélt ég hefði fundið léttvægustu frétt dagsins í þessari hérna (sem annaðhvort Skapti eða Skafti hefði kallað nýja frétt um nýjar fornleifar):
Eyrnalokkur finnst eftir að hafa verið týndur í 73 ár!
En þurfti ekki að leita nema tveimur fyrirsögnum neðar til að finna þessa hérna:
Spears og Federline ná bráðabirgðasamkomulagi!
Sem er kannski líka frétt um nýjar fornleifar, svona á sinn hátt.
Oh, brother.