í dag ætla ég að bregða aðeins út af vananum og röfla ekki bara stefnulaust um það sem mér dettur í hug. Þess í stað ætla ég að birta hér grein sem ég hef skrifað um Stjórnmál í Georgíu sem ég kýs að kalla: Grúskað um Georgíu.
Það er margt í heiminum sem kemur í pörum, t.d. tvíburar, vettlingar o.m.fl. Fræg er t.d. setningin “They usually travel in pairs†úr mynd Woddy’s Allen “What you always wanted to know about sex but were to afraid to askâ€. Eitt af því sem kemur í pörum í þessum heimi er Georgía. Eina er að finna í suðurríkjum Bandaríkjanna og aðra í Kákasusfjöllum. Georgía í Kásasusfjöllum er mun eldri og er hægt að rekja sögu hennar langt aftur í tímann.
Fyrst smá saga:
Mörg stórveldi fornaldar hafa barist til valda á þessu svæði og má þar m.a. nefna Grikki, Persa, Makedóníumenn og Rómverja. Síðar varð vesturhluti Kákasus og þar með Georgía hluti af býsantíska heimsveldinu á meðan Persar réðu austurhlutanum og má sjá þá skiptingu enn í dag, t.d. í mismunandi trúarbrögðum Georgíumanna og Aserbaijana. Eftir að Býsans náði Tbilisi úr höndum araba hófst gullöld Georgíu undir nafninu Iveria, en það land réði yfir miklum hluta Azerbaijan og austurhluta Tyrklands. Þetta gullaldarskeið á 10. til 13. öld byggðist að miklu leiti á ávöxtunum af verslunarleiðinni milli Evrópu og Austur-Asíu sem lá um Kákasus. Eftir 13. öldina réðu hins vegar ýmsir yfir svæðinu; Mongólar, Persar og Ottómanar þeirra helstir. Undir lok 19. aldar náðu Rússar yfirráðum í Georgíu. Snemma risu upp sósíalískar þjóðernishreyfingar í Georgíu og er Iosif Dzhugshvili líklega einn frægasti leiðtogi þeirra en hann tók sér síðar nafnið Stalín.
Georgía lýsti yfir sjálfstæði 1918 en Rauði herinn hernam landið 1920. Síðan var landið hluti af Sovétríkjunum allt til ársins 1992. Fyrstu lýðræðislegu kosningarnar innan Sovétríkjanna voru haldnar í Georgíu árið 1990 og þær vann Zviad Gamsakhurdia en honum var steypt af stóli 1992 þegar Shevardnadze tók við.
Eduard Shevardnadze:
Hann fæddist árið 1927 og varð formaður kommúnistaflokks Georgíu 1972. Það þýddi í raun að hann var æðsti embættismaður í landinu og því embætti hélt hann til 1985 þegar hann var gerður að utanríkisráðherra Sovétríkjanna. Það embætti átti hann líklega helst að þakka góðu vinfengi við Mikhail Gorbasjev og hugmyndafræðilega samkennd. Þeir félagar hafa fengið mestan heiðurinn af þýðunni sem varð á þessum árum í samskiptum austurs og vesturs og líklega ekki að ósekju. Þjóðverjar hugsa hlýtt til Shevardnadze enda sameining Þýskalands bein afleiðing af ákvörðunum hans og Gorbasjevs. Eftir fall Sovétríkjanna sneri Shevardnadze aftur til Georgíu og tók þar við stjórnartaumunum. Margir Rússar hugsa þó ekki eins hlýtt til hans og Vesturlandabúar enda er honum að hluta til kennt um endalok Sovétríkjanna auk þess sem hann gerðist svo þjóðarleiðtogi þess ríkis sem var með þeim fyrstu að segja sig undan rússneskum yfirráðum.
Georgía eftir 1992:
Shevardnadze var mjög vinsæll í upphafi og hlaut um 90% atkvæða til að verða formaður framkvæmdaráðsins en það var n.k. ríkisstjórn sem stofnuð var eftir að Gamsakhurdia var rekinn frá völdum. Adam var þó ekki lengi í paradís því fljótlega fór að kræla á uppreisnarmönnum í Abkhasíu sem er vestast í Georgíu. ín fjárhagslegs stuðnings Moskvu-valdsins urðu glæpaklíkur líka valdamiklar í landinu og barátta Shevardnadze skilaði litlu í baráttunni við þær. Innviðir samfélagsins fúnuðu, mennta- og heilbrigðiskerfi hrakaði og Georgíubúar urðu fátækari en nú eru um 60% íbúanna undir fátæktarmörkum. Það var ekki fyrr en Shevardnadze gekk til samninga við Rússa og Georgía gekk í Samveldi sjálfstæðra ríkja (CIS) að honum tókst að ná böndum á uppreisninni í Abkhasíu með stuðningi Rússa. Hann vann einnig bug á einni skæðustu glæpaklíkunni en þurfti að gjalda fyrir með vinsældum sínum því í kosningunum 1995 fékk hann 20% minna fylgi en áður. Má að mestu rekja það til ásakana um undanlátssemi gagnvart Rússum sem settu upp þrjár herstöðvar í landinu. Fyrir kosningarnar hafði Shevardnadze stofnað sinn eiginn stjórnmálaflokk sem hefur barist fyrir hann á þingi og er Shevardnadze í raun leiðtogi hans að öllu öðru leiti en að nafninu til. Á þessum tíma varð einnig fyrsta tilræðið gegn honum og síðan fylgdi annað árið 1998. Frá þeim tíma hefur mátt sjá miklar breytingar á stjórnunarstíl Shevardnadze. Hann er varfærnari og óáræðnari enda tapaði hann enn fylgi í kosningunum 2000 þó að hann héldi embætti forseta. ísakanir um spillingu hafa orðið háværari á síðustu árum.
Nýjustu atburðir:
Nú í nóvember voru haldnar þingkosningar í Georgíu og fór flokkur Shevardnadze með sigur af hólmi með 21% atkvæða, samstarfsflokkurinn hlaut 18,8% og þannig tryggði Shevardnadze sér nægan stuðning á þinginu. Stuttu eftir kosningarnar fór hins vegar að bera á ásökunum um kosningasvindl og voru þær studdar ummælum eftirlitsmanna sem höfðu ekki fengið að fylgjast með öllum kjörstöðum og og sögðu úrslitin endurspegla mikið kosningsvindl í mörgum héruðum. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar Mikhail Saakashvili og Tsotne Bakuria hófu þegar að mótmæla niðurstöðunum með þeim árangri að þegar herinn sneri baki við Shevardnadze, en honum hafði hann reynt að beita á mótmælendur, sá hann sig tilneyddan til að segja af sér enda ljóst að kosningasvindlið sem flokkur hans stóð fyrir getur vart annað en verið undan hans rifjum runnið eða að minnsta kosti með hans vitneskju enda hafði fylgi hans enn dvínað frá árinu 2000.
Staðan og hugleiðingar:
Það er vissulega sjónarsviptir af Eduard Shevardnadze af sviði alþjóðastjórnmála því hann er án efa einn af stóru köllunum á þeim vettvangi á síðustu öld. Enginn skyldi þó gráta mikilmenni sem hafði fallið af háum stalli niður á það plan að keppast við að halda völdum sínum og stöðu við kjötkatlana með kosningasvindli. Það besta sem hægt er að segja um hann nú er að hann sá þó að sér og hætti án þess að til mikilla blóðsúthellinga þyrfti að koma. Þær vangaveltur hafa þó komið fram að atburðarás þessi hafi öll verið hönnuð af Bandaríkjamönnum sem munu hafa reynt sambærilega hluti í Júgóslavíu (með árangri) og í Hvíta Rússlandi (árángurslaust). Kenningin gengur út á það að eftir því sem spillingin jókst í Georgíu og Shevardnadze varð handgengnari Rússum hafi Bandaríkjamönnum fundist nauðsyn til stjórnarskipta þar sem leiðtogar stjórnarandstöðunnar munu vera með eindæmum Bandaríkjavænir. Það skiptir einnig miklu máli í þessu samhengi að fyrirhuguð olíuleiðsla frá Kaspíahafi mun liggja um Georgíu til Vesturlanda og hliðholl ríkisstjórn því æskileg. Síðustu vikurnar fyrir kosningarnar mun þannig talsverður fjöldi bandarískra ráðgjafa hafa heimsótt landið, bæði til að tala um fyrir Shevardnadze og til að leggja á ráðin með stjórnarandstöðunni. Einnig munu Bandaríkjamenn hafa óttast að með minnkandi völdum ríkisstjórnar Shevardnadze og aukinni spillingu yrði landið vænlegt aðsetur hryðjuverkamanna (les. arabískra andstæðinga Bandaríkjamanna). Ég veit ekki hversu mikinn trúnað er hægt að leggja í svona kenningar en þær eru þó birtar á vef BBC.
Vona ég að grein þessi hafi verið mörgum til fróðleiks, einhverjum til ánægju og vonandi engum til leiðinda. Ætla ég að lokum að lýsa því yfir að ég mun ekki skrifa aðra þrátt fyrir að margir hlutir í þessum heimi komi í pörum.
Heimildir:
Fréttablaðið (25. og 26. nóvember)
http://www.bbc.co.uk
http://www.pravda.ru
http://sg.travel.yahoo.com/guide/europe/georgia/history.html
http://www.osgf.ge/all/ika/eduard_shevardnadze.htm