Var að fá bréf í ábyrgðarpósti þar sem leigusali minn tilkynnir mér að hún sé búin að ákveða að skila Akureyrabæ íbúðinni (hún keypti hana í félagslega kerfinu) og þurfi því að segja mér upp leigunni. Ég hef þriggja mánaða uppsagnarfrest og þarf því að skila íbúðinni 1. júní. Helvítis, andskotans, djöfulsins, morrans, rassgats, ólukkans, fjárans óheppni!!!!!!!!!!!!