Önnur sýningarhelgi og allt gekk að óskum í dag. Eftir að ég kom heim og var búinn að fara í sturtu og svona ákvað ég að ganga út í Síðu og kaupa gos til að hafa með matnum. Strákarnir fóru með mér og við nutum þess að rölta þetta í góða veðrinu. Það var einhvern veginn allt svo ferskt og fallegt. Mannlífið nýkomið undan snjónum og farið að þrá vorið. Ég er ekki frá því að það hafi tveir verið farnir að grilla á þessari leið. Ef veðrið helst svona í vikunni er ég að hugsa um að grilla líka. Þar að auki er ég að vona að bíllinn minn komist í lag í þessari viku. A.m.k. kom vélin til bæjarins á fimmtudaginn og viðgerðarmaðurinn ætlaði að byrja á þessu um leið og hann væri búinn með það sem hann var að vinna í þá. Gulla fann líka íbúð á netinu (þ.e.a.s. hún fann hana á netinu. íbúðin er að sjálfsögðu á Akureyri en ekki á netinu) sem gæti hentað okkur. Hún er fjögurra herbergja og kostar ekki nema 8 milljónir. Kannski fáum við leyfi íbúðalánasjóðs og SPRON til að kaupa hana. Það eru líka áhvílandi á henni 7 milljónir svo hugsanlega þarf maður bara að borga eina á milli og yfirtaka lán? Þetta er reyndar gamalt og lúið hús sem þarfnast lagfæringar við svo ég held ég láti tengdapabba skoða þetta vandlega áður en ég geri eitthvað meira í málinu. En ef þetta eru lagfæringar sem maður getur staðið í sjálfur í fyllingu tímans, næstu árin eða áratugina …. þá er aldrei að vita. Þessi íbúð er líka í Innbænum og það hefur mér alltaf þótt mjög sjarmerandi hluti af Akureyri (hin raunverulega Akureyri í raun og veru). Mikið assgodi er ég bjartsýnn og jákvæður í dag! Það verður að gera eitthvað í þessu!
BBíB