Tengdaforeldrarnir fóru til Reykjavíkur yfir helgina og við sníktum af þeim annan bílinn. Svo hringdi viðgerðarmaðurinn í dag og tilkynnti að bíllinn okkar væri tilbúinn, svo nú höfum við tvo bíla yfir helgina! Sem er ágætis tilbreyting eftir þriggja vikna bílleysi. Þetta er líka rándýr viðgerð og tengdóin ætla að lána mér fyrir henni, sem er mjög gott, en hins vegar hef ég ekki hugmynd um hvenær ég get mögulega farið að greiða þeim til baka. Annars ætti maður ekki að vera að kvarta. Miðað við hvað bíllinn var gerónýtur er ekki slæmt að fá nýja og minna keyrða vél með fylgihlutum, vinnu, smurningu, viðhaldi o.s.frv. fyrir um 130 þúsund. Þetta er í raun eins og nýr (notaður) bíll.
í þessari viku voru útivistardagar í skólanum og voru þeir notaðir til skíðaferða upp í Hlíðarfjall. í gær fóru strákarnir og Dagur kom allur krambúleraður og marinn til baka og hefur ekki getað hreyft á sér vinstri höndina síðan. Skólahjúkrunarfræðingurinn segir að hann hafi marist og muni bólgna en það eina sem hann þurfi sé í raun að jafna sig á þessu. Ef hann verður ekki farinn að hreyfa höndina á sunnudaginn ætla ég samt að fara og láta kíkja á þetta. Ég sagði honum að það hefði nú gerst nokkuð svipað fyrir mig þegar ég fór á skíði og Gulla hefur víst sömu sögu að segja frá því hún var pínd á þessi voðatæki. Kannski hvílir bölvun á familíunni? Skíðabölvunin ógurlega og hættulega!! Við verðum að sjá til hvort þetta komi líka fyrir Kára, en í gær var hann bara á sleðanum sínum og skemmti sér að sögn konunglega. Svo fór ég í fjallið í dag og það vildi ekki betur til en svo að tveir nemendur slöðuðust og þurfti að flytja þá með sjúkrabíl niður í bæ. Þetta reyndist sem betur fer ekki vera mjög alvarlegt en annar þeirra var brotinn og hinn úr lið að mér skilst. Það vekur náttúrulega upp spurningar um hvort það sé í raun hlutverk skólanna að ýta nemendur út í svona exteme-sport eins og skíði? Foreldrar bera jú ábyrgð á börnum sínum og ættu líka að fá að ráða því hvort þau hætti lífi og limum í að geysast niður snarbratt fjall í harðfenni standandi á tveimur mjóum prikum á tugkílómetra hraða án nokkurs hlífðarbúnaðar.