Varð að fara og kíkja á þetta nýja look hjá Blogger. Þetta lítur nú bara ágætlega út þó svo að ég sjái ekki alveg tilganginn með þessu.
Stefán varpaði fram ansi hreinst áhugaverðri landafræðispurningu við Eurovision færsluna. Af hverju er Kýpur talið til Evrópu?
Ég vildi víkka þessa spurningu út og spyrja: Af hverju eru Azerbadjan, Georgía og Armenía talin til Evrópu? Og af hverju tilheyra Azoraeyjar Evrópu? Af hverju tilheyra Bermúdaeyjar ekki Evrópu?
Byrjum á Kýpur. Kýpur var náttúrulega grísk eyja og þótt hún sé landafræðilega nálægust Asíu-hluta Tyrklands verður að telja hana til stóru grísku eyjanna eins og Krít og Rhodos. Kýpur hlýtur því að teljast evrópsk þrátt fyrir landafræðilega staðsetningu.
Það sama má kannski segja um Bermúda. Þar hófst byggð mun seinna en á Kýpur eða árið 1609 og þá voru það skipsreka Bretar sem þar námu land. Bermúda hefur því alltaf verið bresk eyja með breska menningu og ætti því að tilheyra Evrópu. Bermúda er reyndar nær Ameríku en Evrópu, en þó mun fjær Ameríku en Kýpur er frá Asíu.
Azoraeyjar eru svo portúgölsk nýlenda í miðju Atlantshafi og eru landafræðilega nær Evrópu en Ameríku svo það er líklega eðlilegt að þær tilheyri þeirri álfu.
Kákasuslöndin þrjú tilheyrðu svo náttúrulega áður Sovétríkjunum og þar áður Rússlandi og reiknuðust því með Evrópu-hluta þess. Þegar þau fengu svo sjálfstæði á nýjan leik hefur þótt óþarfi að flytja þau á milli heimsálfa. Menningarlega eiga þessi ríki þó margt sameiginlegt bæði með Rússlandi (þá helst Georgía)og Mið-Austurlöndum (þá helst Azerbadjan). Knattspyrnulega séð væri betra fyrir þessi lönd að tilheyra Asíu. Þau ættu þá meiri möguleika á að komast á HM. Spurning hvort þessar þjóðir líti á sig sem Evrópubúa?
Svo hefur komið í ljós að Lúxemborgarar eru ekki með í ár vegna kostnaðar. Þeir eiga víst að borga helmingi meira en við fyrir þátttökuna þrátt fyrir að vera lítið fleiri (u.þ.b. 450.000)en þar eru þjóðartekjur víst hæstar á mann í Evrópu.
Þar að auki hef ég komist að því að Marókkó tók þátt einu sinni. Það var árið 1980 og lentu þeir þá í 18. sæti og fengu 7 stig fyrir lagið Bitakat Hob. Þetta ár tóku 19 þjóðir þátt og eina þjóðin sem var fyrir neðan Marókkó voru Finnar og útskýrir þetta kannski hvers vegna Marókkóar hafa aldrei tekið þátt aftur.
P.S. þetta var árið sem Johnny Logan vann í fyrsta sinn með laginu What’s Another Year. Hann vann svo aftur með því 1987, en þá undir nafninu Hold Me Now.