109248815118155460

Persóna dagsins í­ dag í­ Fréttablaðinu er Bolli Thoroddsen sem er að bjóða sig fram til formanns Heimdalls í­ dag. Ég hef áður lýst því­ yfir að mér þætti hann mun skárri kostur en mótframbjóðandinn en núna er ég búinn að skipta um skoðun. Eins og Bolli og stuðningsmenn hans hafa sjálfir bent á hafa núverandi forystumenn Sjálfstæðisflokksins og ungmennasamtaka hans markvisst hrakið ungt fólk frá flokknum. Öfgafullir hægrimenn á borð við Daví­ð Oddsson og Björn Bjarnason höfða ekki til ungs fólks og SUS og Heimdallur með ví­ðattu vitlausa frjálshyggju forkólfa á borð við Birgi írmannsson, Sigurð Kára og Ingva Hrafn gert sitt til að hrekja ungt fólk burt. Þetta finnst mér að sjálfssögðu gott mál og átta mig nú á því­ að Helga írnadóttir er lí­kleg til að halda þessu áfram og tryggja jafnaðarmönnum fylgi unga fólksins á Íslandi. Það sí­ðasta sem við viljum er sæmilega skynsama hægrimenn!

Annars er kostuleg auglýsingin frá KB-banka í­ Fréttablaðinu í­ dag. Ég veit ekki hvað þessi maður þarna á að vera að gera. Kannski er þetta gamall í­þróttamaður en hann kann a.m.k. ekki að binda bindishnút! Íslenska ólympí­uliðið gekk inn á völlinn í­ gær og var mun fjölmennara en t.d. liðin frá Senegal og Saudi-Arabí­u. Ætli stór hluti af þessu liði hafi ekki verið fararstjórar, þjálfarar, SMINKUR og BINDISHNíTARAR? Fyrir utan náttúrulega Sjón og rótarana hennar Bjarkar!

Íslandsbanki og Landsbankinn eru lí­ka með heilsí­ðuauglýsingar í­ blaðinu í­ dag. Mér datt í­ hug nýtt slagorð fyrir bankana: Bankarnir! Búnir að svindla á þér sí­ðan 1886! Af hverju ætli fréttamenn á Íslandi geri ekki úttekt á hlutum eins og afborgunarlausum lánum, þjónustugjöldum, launatryggingu og hvað þetta svindl heitir nú allt saman?

Bé, bé í­ bé.