Hvern munar ekki um 4.212.000 kr.?
Mér datt þessi spurning í hug þegar ég var að skoða auglýsinguna frá KB-banka í Fréttablaðinu áðan. Þar er spurt: „Hvern munar ekki um 34.500 kr. á mánuði?“ Þetta reynist svo vera mismunurinn á greiðslubyrði á mánuði af nýju KB íbúðaláni og lánum frá íbúðalánasjóði, lífeyrissjóði og banka. Merkilegt að bankalánið hefur langhæstu greiðslubyrðina miðað við upphæð 🙂
Ef maður lítur hins vegar á tölurnar og reiknar svolítið sést að nýja KB íbúðalánið er til 40 ára en hin til 10 – 25 ára. Heildargreiðslur af KB láninu (miðað við þeirra eigin forsendur og greiðslubyrðina sem er gefin upp í auglýsingunni) eru því 22.896.000 kr.
Af hinu láninu borgar maður hins vegar 82.200 á mánuði í 10 ár eða 9.864.000 og eftir það 49.000 í 15 ár í viðbót eða 8.820.000 kr. Þ.e.a.s. 18.684.000 í heildina.
Maður sparar sem sagt 4.212.000 á því að taka ekki KB-íbúðalán samkvæmt þessari auglýsingu frá þeim.
Merkilegt líka að upphaflega lánsfjárhæðin í þessu dæmi virðist vera 10.500.000 kr. Fái maður þær lánaðar hjá KB-banka þarf maður sem sagt að borga þær mera en tvöfalt til baka. Ég er náttúrulega bara máladeildarstúdent og ekki sleipur í stærðfræði, en það sýnast mér vera meira en 100% vextir! (Reyndar á 40 árum)