Ég átti afmæli í gær
Ég átti afmæli í gær
Ég átti afmæli sjálfur
Ég átti afmæli í gær
Kallinn bara orðinn 34 ára og satt best að segja þá finnst mér ég vera mun fullorðnari í dag en í fyrradag. Ég fékk bókina A Hat Full of Sky frá strákunum og Gullu. Sumarfríið gengur líka vel þó ég hafi ekki verið eins duglegur að undirbúa íslenskuverkefnin fyrir 7. bekkinn næsta vetur og ég ætlaði að vera. Það lítur líka vel út fyrir mína menn í formúlunni og tímabilið í ár virðist ætla að verða spennandi. Ég er búinn að kaupa bjór fyrir helgina og ætla að skipuleggja þrifin á bílnum þannig að ég nái að horfa á keppnina á sunnudaginn. Það er voðalega lítið að gerast í þjóðfélaginu núna sem ég nenni að blogga um.