Þá er Alfreð hættur í pólitík, sörpræs, sörpræs! Þá er Björn Ingi á beinu brautinni (fyrir utan að ég efast um að Framsókn nái manni í Reykjavík). Mér finnst nú líklegt að þetta verði jafnvel enn frekar til að draga úr tiltrú manna á flokknum sem var orðin lítil fyrir. Það er bara alltof dæmigert fyrir Framsókn að skáka mönnum til í einhver góð embætti og nefndir til að hleypa nýju fólki að sem annars hefði skíttapað fyrir þeim gamla. Undantekning frá þessari reglu er náttúrulega útreið Páls Péturssonar í prófkjörinu í Norð-vesturkjördæmi. Aðrir flokkar hafa svo sem gert þetta líka en ekki í jafn gífurlega miklu mæli og Framsókn.
Smá saga: íður en ég keypti nýja bílinn var ég búinn að keyra um bæinn vikum saman að leita að bíl á góðu verði, helst fjórhjóladrifinn, steisjon og ódýran en samt í góðu lagi. Ég fann loks bílinn hjá Ingvari Helgasyni og fór þangað, prufukeyrði hann og ákvað að kaupa. Þannig að ég arkaði öruggur með mig inn á skrifstofuna hjá þeim og ætlaði nú að fara að prútta niður verðið á bílnum (sem var ekki hátt fyrir). Það kom vandræðasvipur á afgreiðslumanninn þegar hann útskýrði fyrir mér að þetta væri tilboðsbíll, búið að slá u.þ.b. 200 þúsund af honum og með fylgdi 75 þúsund króna úttekt í Smáralind. Ég skal viðurkenna að um mig fór kjánahrollur enda hafði ég ekki haft hugmynd um þetta tilboð hjá IH. íkvað í skyndi að vera ekkert mjög fastur á því að fá afslátt á bílnum enda úttektin hátt í fjórðungur af verðinu sem ég borgaði fyrir hann.