Mikið var nú gaman að Finnar skyldu vinna Eurovision. Ég hafði ekki einu sinni gert ráð fyrir þeim á topp 5 listanum mínum. Minni samt á að ég gaf þeim 4 stig svona persónulega. Fyrstu sjö sætin voru svona í keppninni:
1. Finnland
2. Rússland
3. Bosnía-Herzegóvína
4. Rúmenía
5. Svíþjóð
6. Litháen
7. Grikkland
Þarna eru tvö lönd sem koma mér í opna skjöldu, þ.e. Finnland og Litháen. Bæði lönd gerðu svolítið út á grínið og gátu þess vegna fallið í mjög misgóðan jarðveg eftir stemmingunni í álfunni (eins og sást með íslenska framlagið). Til gamans má geta þess að Ísland lenti í 13. sæti í undankeppninni, rétt á eftir Belgíu, og því ljóst að Evrópubúar voru ekki jafn mikið á móti henni Sivíu okkar og margir héldu. Lenti ekki Selma í 16. sæti í fyrra?
Spáin mín var svona:
1. Grikkland
2. Bosnía-Herzegóvína
3. Svíþjóð
4. Rúmenía
5. Rússland
Þetta eru sömu lönd og voru á toppnum í raun, bara í annarri röð og það tel ég nokkuð góðan árangur í ljósi þess að það var ekkert augljóst yfirburðaratriði í keppninni í ár og að Finnarnir komu eiginlega bara „out of nowhere“ og unnu.
Hins vegar fundust mér áhorfendur í Grikklandi með eindæmum dónalegir. Ekki bara það að þeir hafi púað á Silvíu, heldur púuðu þeir líka þegar Litháen komst áfram, þegar Litháar komu fram í kvöld og þegar Litháar gáfu stig. í upphafi stigagjafar púuðu þeir líka á öll lönd sem gáfu Grikkjum fá eða engin stig en voru undir lokin farnir að fagna fimm stigum og hærra. Ljóst að Grikkir eru dónar sjálfir og ég skil vel að Silvía hafi sagt þeim að fara til helvítis. Ég tek undir með henni. Það á ekki að púkka upp á svona lið og fólk sem er svona dónalegt er í ákaflega slæmri stöðu með að vera setja sig á háan hest gagnvart hrokafullri, dónalegri stelpu með gelgju dauðans sem er þar að auki bara grín og ádeila frá upphafi til enda. Drullum yfir Grikki!