ímyndum okkur að til sé sveitarfélag þar sem er 11 manna bæjarstjórn. ímyndum okkur enn fremur að 5 flokkar hafi náð inn manni í þessa bæjarstjórn. Við getum kallað þá B, D, L, S og V til hægðarauka. ímyndum okkur enn fremur að skipting bæjarfulltrúa sé með eftirfarandi hætti:
B 1 maður
D 4 menn
L 1 maður
S 3 menn
V 2 menn
Ljóst er að 6 fulltrúa þarf til að mynda meirihluta. Mögulegir meirihlutar eru því:
B, D og L = 6
B, S og V = 6
D og S = 7
D og V = 6
L, S og V = 6
Þá er ljóst að ekki verður myndaður meirihluti í þessu ímyndaða sveitarfélagi nema annað hvort D eða S eða báðir komi það að. Nú skulum við ímynda okkur meira. ímyndum okkur að L sé klofningsframboð úr B og L og B geti þar af leiðandi ekki unnið saman. ímyndum okkur einnig að V sé á öndverðu meiði við D í flestum málum og þeir geti þ.a.l. ekki heldur unnið saman. ímyndum okkur nú að eitthvað (annað en reynsluleysi og ótraustur meirihluti) hafi valdið því að S treysti sér ekki í samstarf við V. Þá er aðeins einn möguleiki á meirihlutasamstarfi eftir. Núna getum við hins vegar hætt að ímynda okkur og litið frekar á staðreynd. Hún er sú að lang flestir kjósendur S í ímyndaða sveitarfélaginu kusu S til að koma D frá völdum. Þessi meirihluti myndi því valda verulegu fylgishruni S í kjördæminu sem ímyndaða sveitarfélagið er í þar sem gífurlega hátt hlutfall íbúa kjördæmisins býr í ímyndaða sveitarfélaginu. Ef við höldum áfram að ímynda okkur og ímyndum okkur núna að þessi staðreynd valdi því að S hafnar meirihlutasamstarfi við D. Hvað gerist þá? Hvað gerist ef ekki er hægt að mynda meirihluta í einhverju sveitarfélagi eftir sveitarstjórnarkosningar?