Fyrir nokkru fór ég í fyrsta prófið sem ég hef farið í í lengri tíma. Það var um kenningar í opinberri stjórnsýslu. Gífurlegt lesefni en prófið var svo mun einfaldara en ég átti von á. Engar gildrur eða kvikindislegar spurningar. Ég gat meira að segja flett nokkrum vafaatriðum upp og í lokin voru það ekki nema tvær spurningar sem ég var óviss með. í ljós kom að ég gerði þær báðar vitlaust en einkunnin skilaði sér, 9,2.
Á sama tíma skilaði ég fyrsta verkefninu í Almannatengslum. Við áttum að skrifa „policy paper“ og ég verð að viðurkenna að ég var svolítið í lausu lofti með það verkefni. íkvað á endanum að setja upp valblað fyrir BKNE um mismunandi möguleika á útfærslu haustþinga og sendi inn. ílyktaði að það gæti nýst mér í BKNE líka. Kennarinn í Almannatengslum hefur hins vegar verið í einhverju basli með tölvukerfið í Háskólanum og ekki komið einkunnunum inn. Ég var þess vegna að fá einkunnina núna áðan og hún er 9,0.
Af augljósum ástæðum er ég í skýjunum með þessar fyrstu tvær einkunnir og bara þurfti að monta mig við einhvern.