Ég á afmæli í dag. Þegar maður er lítill fagnar maður afmælum en eftir því sem aldurinn færist yfir verða þau bara einhvers konar viðmiðunardagsetningar, eins og skiladagurinn á skattframtalinu, síðasti dagur sem hægt er að póstleggja jólakortin o.s.frv. Maður fær samt alltaf eitthvað smálegt á afmælinu sínu og það er gaman jafnvel þó maður sé að verða 36 ára.