Það má segja að föstudagar seú tíðindamiklir hér á norðurvígstöðvunum. Svo er mál með vexti að í byrjun apríl sótti ég um vinnu í Háskólanum á Akureyri við verkefnastjórn. Síðan leið og beið og ég heyrði ekkert frá þeim. Fékk svo símtal skömmu áður en ég fór í viðtalið í VMA og svaraði nokkrum spurningum. Ég gerði því alls ekki ráð fyrir því að fá starfið í HA þegar ég réð mig í VMA. í þessari viku var hins vegar haft samband við mig aftur og ég spurður hvort ég væri til í að koma í viðtal. Það taldi ég sjálfssagt og fór og ræddi við tvær konur úr háskólanum ásamt starfsmanni Capacent. Ég var líka látinn taka persónuleikapróf og núna áðan (kl. 14:30) fékk ég hringingu og var boðin staðan í HA. í ljósi þess að hún er betur borguð en kennsla (líka framhaldsskólakennsla), ég get byrjað strax í júní og þetta er gjörbreyting frá því sem ég hef verið að fást við, þá ákvað ég að slá til og ráða mig sem verkefnastjóra við Háskólann á Akureyri. Verkefnin sem ég verð með eru prófstjórn og umsjón með fjarkennslu. Þetta hljómar mjög spennandi og krefjandi og ég hlakka ótrúlega mikið til. Þeir í VMA voru líka glaðir fyrir mína hönd og óskuðu mér velfarnaðar í nýju starfi. Húrra, húrra, húrra.