Ég er ekki Sjálfstæðismaður, hef aldrei verið og mun aldrei verða. Hins vegar er ljóst að nú getur enginn bjargað okkur nema Sjálfstæðisflokkurinn. Þá er ég ekki að tala um forsætisráherra, Björn Bjarna eða Davíð Oddsson. Mögulega getur Þorgerður Katrín rétt hjálparhönd en ef einhver getur tekið í taumana og bjargað þessu þá er það hinn óbreytti félagsmaður í Sjálfstæðisflokknum. Þið getið losað okkur við Geir og Davíð.
Ég biðla því til allra Sjálfstæðismanna landsins: Kallið saman fundi, safnið undirskriftum, gerið þið kröfu um að þessir menn víki. Þá komast kannski einhverjir að sem eru tilbúnir til að taka á vandanum.