Þó ekki mín og ennþá sama gamla netfangið freyvangur.net. Ég var í varastjórn Freyvangsleikhússins síðasta vetur og núna í haust var ég kosinn í aðalstjórn og fékk þar hlutverk ritara. Eitt af verkefnum ritara er að halda utan um heimasíðu félagsins. Ég gerði mjög róttækar breytingar, aðallega vegna tölvukunnáttu á meðalmennskugrunni. Það er hægt að sjá gömlu heimasíðuna þarna líka til samanburðar. Ég geri mér grein fyrir því að hún er svolítið fagmannlegri, en að sama skapi þurfti meiri tölvukunnáttu til að vinna í henni. Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst um breytingarnar.