Fyrir utan að skilja ekki karlrembu þá fer bók og bíómynd með umræddum titli ákaflega í taugarnar á mér sem er í raun mjög skrýtið þar sem ég hef ekki lesið bókina og ætla ekki að fara á bíómyndina. Ég held að það sé aðallega umræðan sem pirrar mig, þ.e. hve mikið er gert úr því að Stieg Larson skyldi hafa dáið áður en bækurnar komu út. Nú getur vel verið að þessar bækur séu snilldarverk en það tengist áreiðanlega ekki ótímabæru andláti Larsons. Ég hef mikla samúð með fjölskyldu hans og vinum. Nei, það sem fer í taugarnar á mér er hvað það er búið að „hæpa“ þessar bækur upp (e. hype). Minnir mig á versta pólitíska eða útrásar spuna. Er bókmenntalegur spuni skárri en þeir fyrrnefndu? Fyrir utan það hvað nafnið á bókinni er fráhrindandi, a.m.k fyrir karlmenn. Hljómar eins og últra-feminískt-sænskt-sósíaldrama! En mér skilst að þetta séu spennubækur og ágætar sem slíkar. Ein lína úr umsögn um myndina festist líka í hausnum á mér: Mynd sem tekur á raunsæan og hreinskilinn hátt á kynbundnu ofbeldi! Raunsæan og hreinskilinn? Það var nú gott. Er ekki nóg að vera á móti kyndbundnu ofbeldi, þarf maður að horfa á bíómyndir um það líka? Líklega fjallar bókin (og myndin) um annað og meira en vonda meðferð á konum og illsku feðraveldissamfélagsins, en að því á ég aldrei eftir að komast, því það er gjörsamlega búið að drepa í mér allan áhuga á þessu.