í síðustu viku var leiklistarhátíð NEATA haldin á Akureyri þar sem við í Freyvangsleikhúsinu sýndum Vínlandið sem lokasýningu hátíðarinnar á föstudaginn var.
Þetta var mjög gaman og ég náði að fara á nokkrar sýningar, en missti því miður af nokkrum sem mig langaði að sjá og þá helst: After Magritte frá Lettlandi og Havgird frá Færeyjum. Hins vegar er ég að hugsa um að skrifa stuttlega um þær sýningar sem ég fór á bráðlega.