Ég skoða fréttamiðla á netinu reglulega og ég verð að segja eins og er að enginn þeirra er að mínu mati nógu góður. Helst skoða ég eftirfarandi miðla:
–Eyjan.is: Þar eru fréttir frekar hlutlausar og líklega með skásta móti. Hins vegar eru athugasemdirnar oft mannskemmandi en veita áhugaverða innsýn í hugarheim „bolsins“.
–Pressan.is: Varla fréttavefur heldur slúðursíða en ágætis uppspretta „furðulegra frétta“
–DV.is: Er líklega skásti fréttamiðillinn en missir sig stundum í æsifréttamennsku. Þó ekki það oft að ég sjái frétt þar inni núna sem ég mundi flokka þannig. Svolítið mikið líka af „fólk í fréttum“ fréttum. Þetta er samt líklega sá fréttamiðill sem helst er að treysta, nema formúluvefnum sem er yfirleitt úreltur (nýjasta frétt í dag er af æfingum fyrir Spánarkappaksturinn um síðustu helgi.
Einnig lít ég stundum á:
–Mbl.is: Sem er í raun ekki fréttamiðill heldur deleríum vitstola gamalmennis. ígætt samt að skoða hvað „náhirðin“ er veruleikafyrrt. Þar er samt ágætis formúluvefur.
–Visir.is: Þetta er náttúrulega bara vefhluti Fréttablaðsins og Stöðvar2. í raun allt í lagi en fréttir sem tengjast eigendunum mjög óáræðanlegar. Líka ágætis formúluvefur.
–Smugan.is: Er náttúrulega ekki fréttamiðill heldur flokksmálsgagn Vistri grænna. Það er ágætt að skoða þann hugarheim, en óvarlegt að halda að „fréttirnar“ séu annað en sýn vinstri manna á málin.
–Timinn.is: Óþarfi að segja annað um hann en að hann er alveg eins og Smugan.is ef við klippum út Vinstri græn og setjum Framsóknarflokkinn í staðinn.
Ég skoða hins vegar aldrei:
–AMX.is: Af augljósum ástæðum. Það veldur mér hins vegar vonbrigðum hvað B2.is vísa oft þangað og fær mig til að halda að umsjónarmenn þess vefjar séu e.t.v. ekki alveg nógu raunveruleikatengdir.
Ef það eru fleiri fréttavefir í gangi þá veit ég ekki af þeim. Vonandi uppfylla einhverjir þeirra það að vera með vel unnar fréttir og óbrenglaðar.