Nú verða íþróttakartöflurnar í vinnunni óþolandi í dag. Það eru svona úrslit í leikjum á áratugafresti (er ekki annars áratugur frá jafnteflinu við Frakka?) sem auka á vandann hérlendis og viðhalda vonarneistanum meðan Ísland tapar fyrir öllum alvöruþjóðum í fótbolta næstu tíu árin. Það verður annars fróðlegt að heyra hvernig menn taka þessu á ítalíu. 2 – 0 tap gegn Íslandi eftir arfaslakt gengi á EM í sumar hlýtur að vera martröð ítalskra fótboltabulla. Verð að reyna að finna eitthvað um það í dag.