Rosalega lagði að mér skelfilegan kjánahroll þegar ég horfði á kynninguna á Kastljósinu í fréttunum í kvöld. Svo svakalegan að ég treysti mér ekki til að horfa á sjálfan þáttinn. Ég meina, ég leið líkamlegar kvalir og allt, í alvöru! Merkilegt hvað RúV mistekst alltaf þegar reynt er að vera með létta stemmingu og glens þar á bæ. Það verður bara kjánalegt, stíft og vandræðalegt. Samt tekst þeim þetta alveg ágætlega á Stöð 2.
Á Stöð 2 í morgun var viðtal við mann frá JPV forlagi sem var að selja sjálfshjálparbók. Þar var líka fenginn sálfræðingur til að tala við hann sem var sammála öllu sem hann sagði. Það kom mjög greinilega fram hvað bókin hét, eftir hvern hún væri, hver væri að gefa hana út o.s.frv. Á talstöðinni í hádeginu var svo verið að tala um mikilvægi þess að hafa skýr skil á milli auglýsinga og ritstjórnarefnis í fjölmiðlum, sérstaklega í ljósi nýja konublaðs Frjálsrar Verslunar þar sem málsmetandi konur gátu víst keypt sér viðtal með því að fjárfesta í nógu stórri auglýsingu í blaðinu. Þar lýsti fulltrúi 365 ljósvakamiðla því hátíðlega yfir að svona vinnubrögð tíðkuðust ekki lengur hjá fyrirtækinu. Yeah, right!
Það er í tísku að ráðast á Orkuveitu Reykjavíkur fyrir alls kyns uppátæki, s.s. Línu.Net, risarækjueldi o.s.frv. Nú síðast vegna þess að þar á bæ hafa menn uppi plön um að byggja sumarbústaði á landi sem Orkuveitan þarf að eiga vegna jarðhita og selja þá. Þetta finnst fólki fáránlegt; að OR sé að byggja sumarbústaði og selja! Rökin gegn þessu eru þau helst (ein) að OR eigi ekki að standa í óskyldum rekstri, nær sé að selja landið en halda eftir nýtingarréttinum á jarðhitanum. Sjálfur efast ég um að það sé raunhæft. Landeigandi hlýtur alltaf að eiga þau hlunnindi sem jörðinni fygja og jafnvel þó slíkum rétti sé haldið eftir hlýtur það einungis að vera tímabundið. Mér sýnist þetta vera mjög sniðug lausn til að tvínýta landið, jarðhitann neðanjarðar og sumarbústaðina ofanjarðar.
Mér finnst reyndar líka eðlilegt að fyrirtæki sem sérhæfir sig í að reka veitur (rafmagns- og hitaveitur) líti á það sem eðlilegan hluta af starfseminni að reka líka upplýsingaveitu (ljósleiðaranet), þar að auki held ég að öll fyrirtæki, sama hvað þau framleiða, myndu taka þátt í því að þróa nýjar leiðir og aðferðir við að nýta afurð þeirra. Frystihús taka þátt í því að þróa nýja fiskrétti og neytendapakkningar, álfyrirtæki taka þátt í því að rannsaka nýjar leiðir til að nýta ál í ýmsar vörur og Orkuveitan tekur þátt í því að kanna nýjar aðferðir við að nýta heitt vatn, t.d. með risarækjueldi. Allt fullkomlega eðlilegt. Það sem mér finnst ekki eðlilegt er að eyða formúum í að byggja þessa gígantísku, kolsvörtu skipsbrú uppi í írbæ sem er eins og klippt út úe einhverri Star Wars myndanna!
P.S. Ég er í góðum fíling.