Á morgun er skipulagsdagur í vinnunni og svo er ég kominn í vetrarfrí. Það eru reyndar bara tveir dagar, mánadagur og týsdagur í næstu viku. Það verður hins vegar kærkomin hvíld.
Yfirlýsingin hér til hliðar um að mín jól byrji í desember þarfnast hins vegar útskýringa því ég er alls ekki jafn mikill anti-jólaundirbúningsmaðuráöðrumárstímum og ætla mætti. Ég á það meira að segja til að kaupa jólagjafir í janúar ef ég sé eitthvað sérstakt sem mér finnst við hæfi að gefa einhverjum sem er mér kær. Ég er mikill fylgismaður þess að fólk undirbúi jólakortalista og sendi út jólakort snemma, helst svona í lok nóvember. Einnig finnst mér fínt að baka smákökur í lok nóvember og hefja jólaundirbúninginn. Það sem fer hins vegar í taugarnar á mér eru jólalög löngu áður en jólin koma, jólaauglýsingar og jólaskraut í búðum, jafnvel í október. Ég er hins vegar ekki meiri nöldurkall en svo að ég hef frekar gaman af þessum pirringi í sjálfum mér en að hann valdi mér hugarangri.
Gleðileg jól.