Nú á það víst að vera orðinn orðhengilsháttur og klisja að ræða um „nýtingu“ auðlinda. Með því að nota orðið nýting er maður víst nefnilega að ásaka þá sem eru ekki sammála manni um að vilja ekki nýta auðlindirnar. Þetta er álíka gáfulegt og að mega ekki nota orðið menntun þegar er verið að ræða um skólakerfið því þá sé maður að ásaka þá sem eru ósammála um að vilja ekki menntun. Það er hægt að nýta auðlindir á mismunandi hátt, t.d. með því að horfa á þær. Allt frá því Íslendingar hófu hvalveiðar í kjölfar þess að hafa ekki mótmælt hvalveiðibanninu á sínum tíma hafa harkaleg viðbrögð ákveðinna hópa erlendis vakið heimsathygli á Íslandi. Ég man t.d. vel eftir mótmælaspjöldunum þar sem búið var að gera Flugleiðamerkið að hvalasporði. Þessi viðbrögð hafa samt aldrei haft mikil eða varanleg áhrif hér á landi, hvorki á ferðamannastraum sem hefur aukist jafnt og þétt né á sölu sjávarafurða sem skilar sífellt meiru og meiru í þjóðarbúið. Viðbrögðin nú virðast minni en þegar Íslendingar hófu hvalveiðar í vísindaskyni síðast og ég stórefast um að þær hafi meiri áhrif. Nýting er ágætis orð til að nota í þessari umræðu og í því felst engin ásökun um að þeir sem ekki vilja hefja hvalveiðar séu á móti nýtingu auðlinda.
Annars er það helst að frétta að Þjóðkirkjan er á móti mannsali og finnst það alveg ótækt. Þetta var fyrsta frétt í útvarpinu í hádeginu. Mikið er ég nú glaður að til skuli vera stofnun í samfélaginu sem er óhrædd við að taka á svona málum og setja fram róttæka stefnu sem geta orðið átök og umræður um. Ég hef nefnilega hingað til alltaf haldið að Þjóðkirkjan væri hlynnt mannsali og vændi.
í ljósi reynslunnar af athugasemdum ýmissa netnotenda sem yfirleitt kjósa að tjá sig nafnlaust tel ég mig tilneyddan til að taka fram að síðasta efnisgrein er kaldhæðni þó vissulega dragi það úr áhrifamætti þess stílbragðs að þurfa að taka fram að verið sé að nota það. Einu sinni lenti ég meira að segja í því að semja kaldhæðnislegt mótsvar við kaldhæðnislegri athugasemd til þess eins að vera bent á það að um kaldhæðni hefði verið að ræða. Nei, þú segir ekki? (Er hægt að umorða þetta þannig að ekki þurfi að nota orðið kaldhæðni/kaldhæðnislegt jafn oft?)