Ég fékk fréttir í gær og nánari útskýringar í dag sem ollu mér töluverðum vangaveltum. Aðallega um mína eigin framtíð en líka um eðli þess samfélags sem við búum í. í ljósi þess að best er að segja sem fæst í reiði ætla ég að bíða með að fjalla nánar um þessar fréttir en í staðinn deila hluta þessara hugleiðinga.Â
Fimm starfsstéttir sem hafa haft áhrif á mig: Kennarar, fræðimenn, stjórnmálamenn, rithöfundar, vísindamenn.
Fimm starfsstéttir sem ég ber virðingu fyrir: Heilbrigðisstarfsfólk, kennarar, þroskaþjálfar, fiskvinnslufólk, bændur.
Fimm starfsstéttir sem ég treysti (á): Heilbrigðisstarfsfólk, kennarar, lögreglumenn, vísindamenn, Fólkið sem mokar af götunum.
Fimm starfsstéttir sem ég vildi launa vel: Heilbrigðisstarfsfólk, kennarar, lögreglumenn, þroskaþjálfarar, björgunarsveitarmenn.
Fimm starfsstéttir sem ég vildi tilheyra: Hvaða starfstétt sem er sem vinnur ekki hættuleg störf og er með sæmileg laun, þ.e. yfir 400.000,- kr. á mánuði.