Það virðist vera komin hefð á að ég bloggi á mánudögum og fimmtudögum. Ekki er það nú gott. Ég ætla að reyna að standa mig betur í þessu í framtíðinni. í gær var æfing á Ronju og á sama tíma tóku tengdaforeldrarnir upp á því að bjóða okkur í önd. Þar missti ég sem sagt af dásamlegri máltíð þar sem ég fór og dýrkaði Díonýsos í staðinn. Slæmt, enda villifuglar einn af mínum uppáhalds mötum.
Héðan er hins vegar ekkert nýtt að frétta. Það snjóar og snjóar og snjóar og snjóar. Samt logn og blíða svo þetta er allt í lagi. Snjómokstur á Akureyri er líka með afbrigðum …. góður. Það er mokað dag og nætur. Meðan maður skreppur frá er tækifærið notað til að moka bílastæðin og á nóttunni moka þeir svo haugunum burtu svo það sé hægt að moka í nýja daginn eftir. Reyndar hef ég farið svolítið niður á Brekku undanfarið (til tengdaforeldranna og á bókasafnið) og þar virðist alls ekki vera mokað jafn vel og hérna í Giljunum. Hvort það er vegna þess að starfsmennirnir í snjómokstursdeildinni eiga allir heima hérna og enginn í Brekkunni eða vegna þess að göturnar þar eru þröngar og örugglega bæði erfitt og leiðinlegt að moka þær veit ég ekki. Akureyrarbær fær hins vegar þrjár stjörnur hjá mér fyrir þetta.
Ég er að fara að kenna 9. bekknum Gíslasögu og þau eru að drepast úr gelgju. Þetta er allt saman svo ömurlegt! Merkilegt! Maður hefði haldið að bókmenntir sem fjalla um lítið annað en morð og ofbeldi ættu að höfða til þeirra (a.m.k. drengjanna). Reyndar er ég vanur þessu viðhorfi þegar ég fer að kenna Íslendingasögur en yfirleitt eru flestir orðnir spenntir þegar farið er í líffræðina og beinabygginguna til að sannreyna hvort það sé raunhæft að höggva menn í herðar niður með sverðum líkt og notuð voru á landnámsöld (sem ég tel vera mjög raunhæft).
BBíB