Stundum fær maður yfir sig nóg af okursamfélaginu hér á Íslandi. Þetta er sérstaklega áberandi þegar kemur að mat og drykk. Um daginn keypti ég kvöldmat fyrir fjölskylduna á Nings sem er nýbúið að opna stað hér á akureyri. Þar kosta réttirnir á bilinu 1.300 til 1.500 krónur. Matur fyrir fjögurra manna fjölskyldu kostaði þannig um 5.000 krónur. Fyrir þann pening fékk maður fjóra litla álbakka af mat (sem heitir stór skammtur) helling af hrísgrjónum og súrsæta sósu. Fyrir svipað verð er hægt að fara með sömu fjölskyldu út að borða á Greifann, Bautann eða Pengs (svona ekki alveg fínustu staðina en staði með stóra skammta og góða þjónustu). Ég læt það fylgja með að mér dettur ekki í hug að fara nokkurn tíman á Nings aftur.
Annar staður sem skemmir fyrir sér með okri er nýja kaffihúsið hér á Akureyri Te & kaffi í endurbættu Bókvali (sem btw. notaði tækifærið þegar verslunin var tekin í gegn og hækkaði verð á nánast öllu þar inni). Þar er boðið upp á lítið úrval öndvegissætabrauðs og góðra drykkja. í Englandi síðast liðið sumar fór ég stundum inn á Starbucks staði og keypti mér frappuccino drykki sem eru ákaflega góðir. Slíkur drykkur kostar um 250 krónur þar en 330 hér á Íslandi. Fyrir þrjár drykki og þrjár kökur (ekki stórar kökusneiðar, heldur brownie og tvær eplaskífur í svipaðri stærð) þurfti ég að borga um 2.100 krónur! Það hefði kostað mig um 3.000 krónur að fara með alla fjölskylduna á kaffihús. Þar að auki þurftum við að sitja úti í kuldanum því það eru svo fá borð þarna inni. Mér finnst merkilegt að hér á Íslandi þurfi oft að skemma góðar hugmyndir með því að okra á þeim. Dæmi, það kostar 1.500 krónur í Náttúruböðin á Mývatni en um 300 – 400 krónur í sund sem er ósköp svipuð upplifun. Ef maður ætlar sér að lifa af laununum sínum er bara að versla í Bónus og hanga heima hjá sér því um leið og maður ætlar að fara að leyfa sér eitthvað upfram það þá er byrjað að okra á manni.