er ekki sami Ólafur og sá sem vill láta kalla sig Reykjarvíkurbashi. Mér skilst að það sé óvirðing við forsetaembættið að nota ekki Hr. þegar talað er um forsetann. í ljósi þess að ég ber hvorki virðingu fyrir forsetaembættinu né þeim sem gegnir því núna (eins og ég hef fjallað ítarlega um áður) ætti ég samt kannski að sleppa því. Mig minnir þó að Ólafur Ragnar hafi eitt sinn verið mjög góður ræðumaður og flutt ýmsan hvassan pistilinn úr ræðustól Alþingis og á pólitískum fundum. Núna er hann hins vegar búinn að tileinka sér þessa mærð og þennan óeðlilega talanda sem helst einkennir presta og aðra froðusnakka. Það var raun að hlusta á hann í útvarpinu áðan og raunar endaði það á því að ég hljóp út og setti kartöflurnar á grillið meðan ég beið eftir næstu frétt. Hvenær ætli landinn átti sig á tilgangsleysi (og aðalsmannahugsunarhætti) forsetaembættisins og leggi það niður?