Á föstudaginn síðasta kom yngri sonur minn heim úr skólanum með svohljóðandi miða:
Þitt barn hefur verið valið í blokkflautuhóp sem hefur verið beðinn að spila í Glerárkirkju á vorhátíð barnakórsins sunnudaginn 2. maí. Þau eiga að mæsta kl. 10:30 en messan hefst kl. 11:00. Þau spila 2 lög. Foreldrar eru vinsamlega beðnir að fylgja barninu og sjá um að flautan sé með.
Að sjálfsögðu var drengurinn upp með sér að hafa verið valinn í blokkflautuhópinn og augljóst var á honum að ekki kom annað til greina en að mæta. Þetta er enn eitt dæmið um svona samfélagsþrýsting sem gerir fólki sem stendur utan þjóðkirkjunnar lífið leitt. Þarna er foreldurm heldur ekki gefinn neinn kostur. Það er búið að velja barnið og það á að mæta (eða mæsta eins og stendur á miðanum!). Eina sem þú hefur val um er hvort þú komir sjálfur en þú ert vinsamlega beðinn um að koma með barninu. Datt kennaranum ekki í hug að athuga áður en hann dreifði þessum miða hvort börnin væru í þjóðkirkjunni. Voru einhverjir Kaþólikkar, Vottar, Hvítasunnumenn, Íslamstrúarmenn, Búddatrúarmenn eða ísatrúarmenn sem fengu svona miða? Var ég sá eini sem er utan trúfélaga sem fékk svona miða? Ég get ekki að því gert en mér finnst þetta dónaskapur með eindæmum og reiðin sauð í mér. Hvað ætli fólk hefði sagt við miða sem hljómaði svona:
Þitt barn hefur verið valið í blokkflautuhóp sem hefur verið beðinn um að spila í Akureyrarmosku á vorhátíð barnakórsins sunnudaginn 2. maí. Þau eiga að mæta kl. 10:30 en tilbeiðsla Allah hefst kl. 11:00. Þau spila 2 lög. Foreldrar eru vinsamlega beðnir að fylgja barninu og sjá um að flautan sé með. (Ég geri ráð fyrir að Íslamstrúarmenn lesi yfir dreifimiðana sína).
Svo við fórum í kirkjuna í morgun svo drengurinn gæti spilað á blokkflautuna sem hann gerði vel og af miklu öryggi meðan ég sat þögull og reyndi að láta ekki á því bera hvað mér fannst þetta allt saman mikil móðgun við mig og mínar lífsskoðanir, en það gladdi mitt litla hjarta að eftir messuna þegar við fórum heim sagðist drengurinn aldrei ætla aftur í kirkju því það væri svo skelfilega leiðinlegt og hann væri orðinn glorhungraður. Með það fórum við heim að borða pizzasnúða.