107546192998032783

Rassgatsvesen. Nú er bí­llinn að strí­ða mér. Farið að hristast og skrölta undir honum pústkerfið. Það merkilega er nú samt að það lagast til muna þegar hann hitnar. Kannski er það ekkert merkilegt þó mér finnist það. Hins vegar tí­mi ég ómögulega að fara að láta gera við hann. Verð bara að keyra hann skröltandi eitthvað fram á vorið.

Ég er að fara að setja upp nýja bloggsí­ðu helgaða matargerð. Þar ætla ég að skrifa upp hvað ég bý til í­ matinn fyrir fjölskylduna, birta uppskriftir og myndir. Þar verður sem sagt hægt að sjá allt frá pakkasúpum upp í­ dýrindis margrétta veislumáltí­ðir. Þ.e.a.s. venjulegur matur hins venjulega manns. Set inn tengil á það sí­ðar.