Það hefur nú heldur lítið verið að gerast upp á síðkastið. Janúar loksins búinn og febrúar framundan. Núna í næstu viku eru þemadagar í skólanum svo kennslan verður að bíða um sinn. Líklega væri best að breyta skólum bara í stórar félagsmiðstöðvar og láta kennslu fara fram á einkareknum stofum fyrir þá sem vilja læra og geta. Manni sýnist svona að það sé þróunin í þessu í dag.
Ég nenni samt eiginlega ekki að röfla yfir því né öðru. Kannski helst yfirnáttúrulega heimskulegum kynningum og dagskrárgerðarfólki á fjölmiðlum. Hvað er þetta eiginlega með þetta Lottófólk? Er það ráðningarkrafa að fólkið sé fyrir neðan 70 í greindarvísitölu eða hvað? A.m.k. virðast kynningarnar og húmorinn benda til þess! Spurninginn í lok Íslands í dag er líka svona dæmi sem er fyrir neðan allar hellur. Mér finnst það oft á tíðum beinlínis móðgun við áhorfendur að setja svona lagað í loftið. Dagskrárgerðarmenn á Bylgjunni eru svo sér kapítuli út af fyrir sig. Ég verð alltaf að draga niður í útvarpinu þegar þessi menni byrja að tala (menni er ekki ritvilla, ég er ekki viss um að þau verðskuldi orðið menn). Þetta er reyndar mun skárra á Rás 2 en tónlistin þar er bara svo skelfileg. Það eru takmörk fyrir því hvað maður getur hlustað á mikið af finnsku tilraunafönki eða álíka! Er ekki hægt að fá fólk með heila til að tala saman og kynna heilalausa tónlist? Nei, líklega er það til of mikils mælst. -ANDVARP-