Af einhverjum ástæðum komu einhver leiðinda dónakomment við síðustu færslu. Frekar barnaleg og bjánaleg þar sem reynt var að móðga mig. Ég hef því þurrkað þau út en velti því fyrir mér hvers vegna í ósköpunum nokkrum myndi detta í hug að gera svona lagað. Það eina sem mér dettur í hug er að um daginn skrifaði ég hugleiðingu á vantru.net og þar var náttúrulega tengill á mig. Kannski að einhverjum trúarnötturum hafi sárnað það sem ég skrifaði og séu bara ekki þroskaðri en það að ryðjast inn á kommentakerfi fólks og kalla það þar öllum illum nöfnum? Ég á samt einhvern vegin bágt með að trúa því þar sem flestir trúaðir sem ég þekki eru sómafólk þrátt fyrir þá rökvillu. En líklega eru svartir sauðir í öllum hópum sem koma illu orði á hina.
Annars blöskraði mér fréttin um 60 milljóna Ferraríinn sem var að koma til landsins. það að til sé fólk sem eyðir svona peningum í bíla vekur með mér óhug.