Porche eða Ferrari, sami munur. Ógeðslegt engu að síður. Ég vil taka það fram að mér finnst allt í lagi að umboðið kaupi þetta og selji svo úr landi með gróða, það er bara bisniss. Ríki kagglinn í útlöndum sem kaupir hann héðan finnst mér hins vegar skíthæll.
Svo var ég að lesa í Fréttablaðinu í morgun að Kerry hefur víst líka ákveðið að styðja ísraela í að halda í ólöglegar byggðir sínar á Vesturbakkanum og valta yfir Palestínumenn og útiloka þannig allar líkur á friði í þessum heimshluta rétt eins og Bush. Það var þá mikill munur á kúk og skít þar. Hingað til hefur von manna bundist við að hægt væri að samþykkja tilverurétt ísraelsríkis og sjálfstæðs ríkis Palestínumanna miðað við landamærin frá því fyrir 7 daga stríðið. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei almennilega áttað mig á þessum tilverurétt ísraelsríkis. Réttast væri að flytja alla ísraela með tölu (a.m.k. þá sem heimta sjálfstætt ríki ísraela) til Wyoming og leyfa Palestínumönnum að eiga þetta land í friði. Ég tel að þessi skoðun geri mig ekki að gyðingahatara frekar en andúð mín á ofstækisflullum hryðjuverkasamtökum íslamstrúarmanna geri mig að arabahatara. Mér finnst bara ísrael vera álíka hryðjuverkasamtök (ef ekki verri) en Al Qaida. (Veit einhver hvernig á að skrifa þetta?)