108342193652412127

Jahh, nú er ég svo aldeilis undrandi. Landsbankinn, KB og Íslandsbanki eru allir að skila metafkomu fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs. Meiri hagnaði á þremur mánuðum en áður hefur þekkst á heilu ári. Það er gott að fyrirtæki á markaði beri sig og skili hagnaði, því­ meiri því­ betra. Ég get þó ekki séð að þetta réttlæti hundruð milljóna aukagreiðslur til bankastjóra og framkvæmdastjóra bankanna. Merkilegt að á sama tí­ma birta bankarnir skýrslu þar sem þeir halda því­ fram að þjónustugjöld sé lægst í­ bönkum á Íslandi af Norðurlöndunum. Neytendasamtökin segja samstundis að þetta séu bara reikningskúnstir og miðað við tölurnar sem fylgja skýrslunni séu í­slensku bankarnir næst dýrastir. Lögfræðingur, eða hagfræðingur, dönsku neytendasamtakana segir lí­ka að skýrslan lí­ti út eins og niðurstöður hennar hafi verið pantaðar. Ég held að þetta allt saman sýni bara á hvaða siðferðisstigi bankarnir hér á Íslandi eru, þ.e. grí­mulaus græðgi, undirferli og plat ráða þar ferðinni. A.m.k. ætti þessi mikli hagnaður að þýða að hægt sé að lækka útlánsvexti og þjónustugjöld og hækka innlánsvexti. Það myndi a.m.k. heilbrigð skynsemi segja manni en einhvern veginn finnst mér ólí­klegt að það gerist.
Undirlægjur Daví­ð virðast halda núna að ef menn andmæla honum og þá sérstaklega fjölmiðlafrumvarpinu fræga séu menn þar með gengnir í­ Baug. Þetta er náttúrulega alveg stórkostleg ranghugmynd sem ég held að lýsi vel sjúkdómsástandi samfélagsins í­ dag. Það að vilja ekki að fyrirtæki á markaði séu slitin í­ sundur, eignarréttur manna takmarkaður, jafnvel að fjöldi manns missi vinnuna og Mogginn verði aftur alls ráðandi á fjölmiðlamarkaði, þýðir ekki endilega að maður vilji að Jón ísgeir eigi þetta allt saman. Bara afhverju ekki alveg eins hann eins og einhver annar? Þurfa að vera einhverjar sér reglur fyrir Jón ísgeir?
Það er lí­ka áhugavert hvernig þessir Sjálfstæðismenn tala. Þeir segja að eina skynsamlega ástæðan fyrir að mótmæla fjölmiðlafrumvarpinu sé vegna þess að eigendur Norðurljósa eru á móti því­. Að eina skynsamlega ástæðan fyrir því­ að stórfyrirtæki vilji eiga fjölmiðla sé til að geta svarað auglýsingum samkeppnisaðila og rægt af þeim skóinn í­ fjölmiðlum sí­num. Einhvern veginn finnst mér svona málflutningur segja meira um Sjálfstæðismenn og þeirra hugsanagang en fólk almennt. Ég skil bara ekki hvers vegna ekki er hægt að setja almenn lög um markaði sem gilda fyrir alla hvort sem þeir reka sjoppu eða dagblað? Svo á Samkeppnisstofnun að sjálfsögðu að vera nógu öflug til að fylgja þessum reglum eftir. Ekki hef ég heyrt Sjálfstæðismenn kvarta mikið vegna einokunar eða fákeppni á olí­umarkaði, samgöngum, fiskútflutningi o.s.frv. og ekki kvörtuðu þeir mikið undan fjölmiðlunum meðan rí­kið eða írvakur eða Armanijakkafötin áttu þá alla.
Annars heldur Egill Helgason því­ fram að bráðlega verði væntanlega gert hallarbylting í­ Sjálfstæðisflokknum lí­kt og þegar Margrét Thacher var rekin frá völdum, en Andra Snæ Magnasyni finnst eins og hann sé kominn á nóbelspall og fái að vera óáreittur til 2044. Hvorugt þessa finnst mér nú lí­klegt en ég get tekið undir með Guðmundi Steingrí­mssyni sem undrast mjög hvernig núverandi ungir þingmenn og áhrifamenn í­ Sjálfstæðisflokknum virðast hafa skipt algerlega um hugmyndafræði frá því­ við þekktum þessa sömu menn í­ menntaskóla. Ég skal viðurkenna að ég var ekki alltaf sammála þeim (reyndar mjög sjaldan) og er ekki enn en einhvern veginn fannst mér ég geta borið ákveðna virðingu fyrir hreinskilni þeirra og heiðarleika á þeim árum. En nú er það fyrir bí­.