Ég ætla að hætta að nota þessi asnalegu íslensku vikudaganöfn sem ofsatrúarklerkar píndu ofan í okkur á miðöldum (eða því sem næst) í krafti þess að eiga einu prentvélina á landinu. í dag er því týsdagur og í mínu lífi verða aldrei þriðjudagar aftur. Það myndi líka einfalda tungumálakennslu að hætta þessari séríslensku vikudaganafnavitleysu og kalla dagana það sama og aðrar germanskar þjóðir.