109566749251878496

Þá er kominn mánadagur og verkfall skollið á. Samninganefnd kennara reyndi að afstýra því­ í­ gær með því­ að leggja fram skammtí­masamning til loka skólaársins þar sem ekki var tekið á stærstu ágreiningsmálum eins og kennsluskyldu, vinnutí­maskilgreiningum o.s.frv. heldur lögð aðaláhersla á launahækkun. Á þessa framreiddu sáttahönd sló samninganefnd sveitarfélaganna (hér eftir kölluð SS) og þess vegna erum við nú í­ þessari stöðu. SS hefur því­ náð því­ að spara sveitarfélögunum einhverjar milljónir meðan á verkfalli stendur. Hins vegar held ég að flestir kennarar séu á þeirri skoðun að fyrst verkfallið er byrjað verði ekki skrifað undir neitt nema alvöru kjarabætur. Kjarabætur sem borga upp tekjutapið í­ verkfallinu á a.m.k. 6 mánuðum.

Að öðru: Ég á brúðkaupsafmæli í­ dag. 7 ár and still going strong. Veit samt ekki hvað við gerum til að halda upp á daginn. Kannski býð ég elskunni minni í­ rómantí­skan göngutúr og svo kaupum við pylsu niðri í­ bæ. Ég er ekki viss að ég geti boðið henni út fí­nna í­ dag. En, þegar verkfallið er búið … Annars skrifar Gulla mí­n um það í­ dag hvernig hún nældi í­ mig (og ég sem hélt að það hefði verið á hinn veginn!).